Heimasíðan verður næst uppfærð n.k. sunnudagskvöld 6. júní.
Föstudasgur 4. júní
Kl.12:15-13:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Á fundinum hlutu Ragnhildur Björnsdóttir og Jón Ingvar Þorgeirsson bókaverðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnskóla Seltjarnarness og Þórhildur Briem sagði frá Frakklandsferð sinni.
Um miðjan daginn undirbjó ég mig fyrir fréttaþátt.
Skoðaði ég m.a. mælingar Mmr (Market and media reasearch) á trausti til stofnana sem gerðar voru seinnipart síðasta mánaðar.
Kl.16 opnaði Ingunn systir og nokkrir aðrir tannlæknar formlega nýju tannlæknastofurnar stofur sínar í Vínaldsleið 16 í Grafarholtinu.
Tannlæknastofurnar eru mjög glæsilegar og vel útbúnar.
Kl.17-19 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Um kvöldið setti ég upp munngrímu vegna öskufalls og fór með slönguna út í garð að vökva því lítið hefur rignt í langan tíma.
Hér er frétt af svifrykinu sem er nú langt yfir heilsuverndarmörkum.
Fimmtudagur 3. júní
Dagurinn fór í lestur gagna fyrir heilbrigðisnefndina.
Seinni partinn lá leiðin í Smáralindina í útréttingar.
Kl.20 fór ég á stórskemmtilega danssýningu í Norðurpólnum í Bygggörðum á Seltjarnarnesi.
Sýningin var dansgjörningur Ragnheiðar S. Bjarnarson(dóttir Bryndísar Bjarnarson, vinkonu minnar) undir heitinu Kyrrja.
Mæli hiklaust með sýningunni, en næsta sýning er á morgun kl.20.
Hér eru upplýsingar um sýninguna.
Miðvikudagur 2. júní
Kl.12-16 er fundur í iðnaðarnefnd Alþingis.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.18:00-20:30 var ég á fundi í viðskiptanefnd Alþingis.
Um kvöldið fórum við Hákon í göngutúr við Nauthólsvík og Öskjuhlíð.
Þriðjudagur 1. júní
Kl.10 heimsótti heilbrigðisnefnd Lyfjastofnun.
Kl.12 var fundur utanríkismálanefndar á Alþingi þar sem meirihluti nefndarinnar(sjálfstæðismenn voru ekki með) samþykkti ályktun vegna árásar Ísralesmanna á skipalest með hjálpargögn sem áttu að fara til Palestínumanna á Gazasvæðið.
Kl.14 var utandagskrárumræða um Palestínu og Ísrael.
Hér er frétt af mbl.is af umræðunum.
Við Sigurður Ingi Jóhannsson vorum talsmenn framsóknarmanna í umræðunum.
Síðan voru atkvæðagreiðslur á Alþingi.
Kl.17:30-18:15 var mín vakt í forsetastóli á Alþingi.
Skrapp af vaktinni á fund þingflokksformanna.
Kl.18:40 hófust atkvæðagreiðslur.
Kl.20:00-21:30 var seinni vakt mín í forsetastóli.
Á leiðinni heim hjólaði ég til mömmu og fékk mér ostabrauð henni til samlætis.
Mánudagur 31. maí
Kl.9:30 var forsætisnefndarfundur.
Kl.12 hófst þingfundur á Alþingi.
Kl.14:30-16:00 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Kl.18:15 hljóp ég í skarðið á fund í utanríkismálanefnd Alþingis þar sem við fjölluðum um Palestínu og Ísrael.
Í dag var dreift á Alþingi þingsályktun minni um rýmri notkun þjóðfánans.
Sunnudagur 30. maí
Um miðjan daginn vann ég á netinu í lestri og afgreiðslu umsókna fyrir norræna menningarsjóðinn, en styrkumsóknir sem eru innan við 100.000 DKK eru afgreiddar með rafrænum hætti í sparnaðarskyni.
Um kvöldið var fjölskyldunni boðið í matarboð til vina.
Laugardagur 29. maí
Eftir að ég var búin að kjósa til sveitastjórnar fór ég rúnt á kosningaskrifstofur okkar á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrst lá leiðin á skrifstofuna á Seltjarnarnesi og svo í Mosfellsbæ.
Skrapp síðan heim og svo á kosningaskrifstofur okkar í Kópavogi og í Garðabæ.
Þar næst á kosningaskrifstofurnar í Hafnarfirði og á Álftanesi.
Á leiðinni heim fór ég á kosningaskrifstofuna í Reykjavík og loks aftur á skrifstofuna á Seltjarnarnesi.
Um kvöldið náði ég að fara heim í smástund til að elda áður en leiðin lá aftur á kosningaskrifstofuna á Seltjarnarnesi þar sem við horfðum á Eurovision og kosningasjónvarpið.
Laust eftir miðnætti skrapp ég svo á kosningahátíð framsóknarmanna á Álftanesi og í Hafnarfirði.