Föstudagur 2. apríl
Um miðjan daginn fórum við Tryggvi Jónsson, Elín Björk Tryggvadóttir, Bragi Magnússon og Húnbogi Þorsteinsson í Þórsmörk.
Þar gengum við upp á Morinsheiðina.
Gangan gekk vel alla leiðina.
Á Morinsheiðinni sáum við til hraunelfsins og eldgossins á Fimmvörðuhálsi.
Mjög fallegt var að sjá eldgosið í ljósaskiptunum.
Á leiðinni niður var komið myrkur og urðum við að staldra við um stund meðan björgunarsveitin aðstoðaði öklabrotinn mann, en hann var tekinn með þyrlu til byggða.
Á leiðinni heim stoppuðum við til að sjá Seljalandsfoss upplýstan í grænu ljósi.
Vorum við komin heim um kl.2:30.
Fimmtudagur 1. apríl
Kl.13 fórum við Heiður í sund í Vesturbæjarlaugina í góða veðrinu.
Var síðan að dytta að húsinu heima.
Kl.18:30 hófst árshátíð Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar(SÍH) í aðstöðu félagsins.
Allir mættu prúðbúnir með fína hatta og skemmtu sér fram eftir kvöldi.
Miðvikudagur 31. mars
Dagurinn fór í að vinna í tölvupósti og öðrum gögnum.
Einnig kláraði ég minningargrein og sendi inn á Moggann.
Kl.17 var móttaka í félagsaðstöðu framsóknarmanna í Háholti í Mosfellsbæ.
Þar var framboðslisti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar samþykktur.
Þriðjudagur 30. mars
Kl.9:30 var morgunkaffi Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Fór síðan í kaffi á stofuna til pabba.
Um miðjan daginn vann ég í málum tengdum íþróttahreyfingunni.
Kl.20 var fundur Framsóknarflokksins á Álftanesi þar sem framboðslistinn fyrir komandi sveitastjórnarkosningar var samþykktur.
Hér eru nöfn þeirra sem eru á listanum.
Mánudagur 29. mars
Kl.11 fór ég í sjónvarpsviðtal fyrir fréttatímann á Stöð 2.
Viðtalið fjallaði um þingsályktunartillögu sem ég er fyrsti flutningsmaður að og er um að hefja bólusetningar á ungabörnum gegn pneumókokkasýkingum(valda m.a. eyrnabólgum).
Skrapp síðan í mat á Alþingi.
Eftir hádegi heimsótti ég Leif bróður í vinnuna hans því hann á afmæli á morgun.
Fór svo í te til tengdó.
Kl.17 fórum við Heimir Örn að hitta stjórn Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur.
Um kvöldið komu Sigurgeir og Simmi í heimsókn til okkar.
Sunnudagur 28. mars
Hluti dagsins fór í að vinna í gögnum norræna menningasjóðsins.
Um miðjan daginn fór ég í TBR-húsið að fylgjast með úrslitum í Íslandmeistarmótinu í badmintoni.
Seinni partinn kom Vilhjálmur Jónsson, vinur okkar frá Hánefsstöðum, til okkar í kaffi, en hann var að keppa á Íslandsmótinu í badmintoni hér um helgina.
Laugardagur 27. mars
Kl.11 var ég í símaviðtali í útvarpsþætti Simma og Jóa á Bylgjunni vegna afnáms undanþáguákvæðis um nektarsýningar á veitinga- og skemmtistöðum.
Kl.12 var fundur í aðstöðu Sundsambans Íslands(SSÍ) í Laugardalnum.
Um kvöldið buðum við mömmu í hátíðarmat.
Í dag gengu Húnbogi og Elín Björk á Fimmvörðuháls til að sjá eldgosið.