Föstudagur 3. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Í dag var þingsályktun mín um áætlun um uppbyggingu ferðaþjónustu á miðhálendinu á dagskrá þingsins til seinni umræðu og stefnt á að greiða atkvæði um hana á mánudaginn.
Kl.16 vorum við Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður, í síðdegisútvarpinu á Rás 2 í Rúv að ræða fréttir vikunnar.
Hér er upptaka af þættinum.
Um kvöldið nýttist tíminn í vinnslu mynda úr hálendisgöngunni um Laugarveginn milli Landmannalauga og Þórsmerkur.
Fimmtudagur 2. september
Fórum af stað snemma úr Botnum í átt að Þórsmörk.
Tókum mikið af myndum og fjölmarga GPS punkta.
Á vaðinu yfir Þröngá aðstoðuðum við franska göngumenn sem þurftu leiðbeiningar til að komast yfir straumþunga jökulána.
Um tíma leist mér ekki á blikuna, en allt fór vel að lokum.
Vegna tafa mátti ekki tæpara standa að ná rútunni í Húsadal kl.16.
Gönguleið í dag var 15 km. og lóðrétt lækkun 300 m.
Var komin í bæinn um kl.19:30 eftir frábæra göngu um hálendi Íslands, alls um 55 km.
Á leiðinni hitti ég fjölmarga útlendinga, aðallega Þjóðverja, Frakka, Ítali, Hollendinga og Norðmenn, en enga Íslendinga nema skálaverði í skálum Ferðafélags Íslands.
Það er því greinilegt að Íslendingar eru hættir í fjallgöngum á þessum tíma hausts.
Ferðafélag Íslands fær sérstakar þakkir fyrir liðlegheit á ferðinni um Laugarveginn.
Til gamans má geta þess að ég gekk Laugarveginn á 4 dögum, en Friðleifur bróðir hljóp hann á frábæru tíma 5 klst. 7 mín. og 7 sek. í Laugarvegshlaupinu í sumar.
Hann varð sjötti í hlaupinu af 300 keppendum. Glæsilegur árangur hjá fertugum manni sem er tiltölulega nýbyrjaður að hlaupa.
Miðvikudagur 1. september
Um morguninn var gengið úr Hvanngili yfir sandana í átt að Botnum syðst í Emstrum.
Veðrið var fínt og fjölbreytt, sól og skúrir í bland.
Komum í fínu veðri í Botna.
Gönguleiðin í dag var 16 km. og lóðrétt lækkun 40 m.
Þriðjudagur 31. ágúst
Um morguninn var gengið í félagi við Marianne að íshellunum.
Þeir eru fallnir saman og alls ekki ráðlegt að reyna inngöngu vegna hrunhættu.
Skoðuðum líka fjölbreytta hveri og fleira áhugavert.
Síðan gengum við niður sléttuna í átt að Álftavatni og Hvanngili.
Á leiðinni tókum við mikið af myndum og GPS punkta fyrir handbókina þ. a. farið var að rökkva þegar litið var fyrst inn til Svavars í Álftavatni og síðan gist í Hvanngili þar sem Elvar ræður ríkjum.
Gönguleiðin í dag var um 14-15 km. og lóðrétt lækkun um 490 m.
Mánudagur 30. ágúst
Gengum af stað upp í Hrafntinnusker um miðjan daginn.
Gönguleiðin er afar fjölbreytt og skemmtileg.
Vegalengd var 12 km. og lóðréttt hækkun 470 m.
Í Hrafntinnuskeri tók Marianne vel á móti göngumönnum.
Marianne er þýsk en hefur búið á Íslandi í áratugi.
Hún rekur skemmtilega verslun í vesturbæ Reykjavíkur sem heitir Klausturbúðin.
Sunnudagur 29. ágúst
Um morguninn lá leiðin í Landmannalaugar til að ganga s.k. Laugarveg milli Landmannalauga og Þórsmerkur til aðstoðar Erik Van de Perre, en hann er jarðfræðingur, ljósmyndari, blaðamaður og leiðsögumaður.
Erik hef ég þekkt lengi, en hann bjó á sínum tíma á Íslandi og spilaði badminton með okkur í Lurkunum um árabil.
Hann hefur gefið út handbækur um vinsælar gönguleiðir á Ísland þar sem m.a. er fjallað um Laugarveginn, Fimmvörðuháls, Kjalveg, Jökulsárgljúfur og Öskjuveg.
Handbækurnar eru stílaðar á ferðamenn frá Þýskalandi, Hollandi og Belgíu.
Síðustu daga gekk hann Fimmvörðuháls og Kjalveg, en nú er komið að Laugarveginum.
Á leiðinni munum við afla nýrra nytsamra upplýsinga fyrir ferðamenn, taka GPS punkta við helstu kennileiti og nýjar myndir fyrir handbókina.
Nýja handbókin er þriðja útgáfa sömu bókar en fyrri útgáfur eru uppseldar.
Seinni part dags gengum við upp á Bláhnúk til að taka myndir fyrir handbókina.
Veður var mjög gott og hentaði vel til myndatöku.
Laugardagur 28. ágúst
Um miðjan daginn skruppum við Hákon í bæinn að kaupa þurrmat og fleira.
Seinni partur dags fór í að pakka í bakpoka.