Föstudagur 13. ágúst
Í dag komu Steini og Anton að sunnan og hófu að vinna í húsinu.
Dagurinn fór í stúss í kringum það.
Fimmtudagur 12. ágúst
Um hádegi lögðum við Lena María af stað á Siglufjörð.
Um kvöldið borðuðum við æðislega humarsúpu á Hannes Boy Café.
Veitingastaðurinn Hannes Boy Café er frábær viðbót í vaxandi ferðaþjónustu á Siglufirði, en staðinn rekur hinn góðkunni Siglfirðingur, Róbert Guðfinnsson.
Miðvikudagur 11. ágúst
Um miðjan daginn varð bílvelta á þjóðveginum, þegar kind stökk fyrir bíl.
Í bílnum voru tveir farþegar sem meiddust til allrar hamingju ótrúlega lítið miðað við að þak bílsins féll talsvert saman.
Við aðstoðuðum fólkið þar til það fór með sjúkrabíl til frekari skoðunar.
Mikil mildi var að ekki fór verr miðað við aðstæður.
Seinni part dags fórum við í sund á Lýsuhóli.
Þriðjudagur 10. ágúst
Dagurinn fór í útivist í frábæru veðri.
Kl.16 fórum við í afar skemmtilega skoðunarferð í Vatnshellinn í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
Leiðsögumenn voru feðgarnir Þór og Ægir, en þeir gerðu ferðina spennandi og skemmtilega og sögðu frá hvernig hraunið rann þarna um á sínum tíma.
Mæli ég hiklaust með ferð í Vatnshellinn því þar er margt að sjá.
Í dag fékk ég margar góðar afmæliskveðjur í símtölum, sms-um og á facebook.
Takk, kæru vinir, fyrir góðar kveðjur.
Mánudagur 9. ágúst
Um miðjan daginn lá leiðin út á land.
Þar hitti ég Ingunni systur og fjölskyldu, mömmu, Lenu Maríu og Emil Örn.
Syntum við í sjónum, veiddum og fórum í létta göngu.
Sunnudagur 8. ágúst
Um miðjan daginn komu Védís og Snorri í heimsókn.
Veðrið var með eindæmum gott og passaði vel fyrir garðvinnu.
Laugardagur 7. ágúst
Dagurinn nýttist í tiltektir.
Um kvöldið fórum við Heiður og Sigga Björns út að borða á Austurindíafélagið.
Löbbuðum við einn rúnt um miðbæinn og heilsuðum m.a. upp á Helenu Önnudóttur.