Föstudagur 9. október
Kl.12:15-13:30 var fundur í rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem koljöfnunarverkefnið Kolviður var kynnt.
Seinni part dags fór fjölskyldan í helgarfrí út á land.
Fimmtudagur 8. október
Kl.8:30-10:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.10:30 hófst umræða um fjárlagafrumvarpið.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt í forsetastóli á Alþingi.
Kl.17:30-19:00 var ég á rótarýfundi í Kópavogi þar sem ég flutti erindi um áleitnar spurningar í ferðaþjónustunni.
Síðan lá leiðin aftur niður í þing til að taka þátt í umræðum um fjárlagafrumvarpið.
Var komin heim úr þinginu um kl.20:30.
Miðvikudagur 7. október
Kl.12:15 fór ég á rótarýfund á Hótel Sögu.
Kl.13:30 var utandagskrárumræða á Alþingi um orkumál sem Gunnar Bragi Sveinsson og Vigdís Haukdóttir tóku þátt í fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.15:30 var utandagskrárumræða á Alþingi um skuldastöðu heimilanna sem við Guðmundur Steingrímsson tókum þátt í fyrir hönd framsóknarmanna.
Skrapp svo í Kringluna.
Kl.20-22 var fjölmennur baráttufundur SÁÁ haldinn í Háskólabíói.
Þriðjudagur 6. október
Um morguninn skrapp ég í kaffi á stofuna til pabba.
Kl.9:30 var morgunkaffi Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Kl.14:30-16:00 var mín vakt í forsetastóli á Alþingi.
Kl.16:15-20:00 nýttist tíminn í EHÍ.
Mánudagur 5. október
Kl.11 var fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.12 hittum við, nokkrir þingmenn, Kare Bryn, framkvæmdastjóra EFTA.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.18:30 var smink fyrir okkur sem vorum ræðumenn flokkanna í eldhúsdagsumræðum.
Kl.20-22 var eldhúsdagsumræða um stefnuræðu forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, á Alþingi.
Fyrir hönd framsóknarmanna töluðum við Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sunnudagur 4. október
Í hádeginu skrapp ég til mömmu.
Kl.13 fórum við Heiður og Anna Hrönn um Kjósaskarð og Hvalfjörðinn upp í Borgarnes í blíðskaparveðri.
Kl.16 sáum við leiksýninguna Brák í Landnámssetrinu.
Leiksýningin var frábær og get ég hiklaust mælt með henni fyrir þá sem enn eiga eftir að sjá hana.
Laugardagur 3. október
Um morguninn skrapp ég í Sundlaug Seltjarnarness.
Kl.11 var morgunkaffifundur framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Fór síðan í gönguferð með Ingunni og fjölskyldu í Undirhlíðum í Hafnarfirði.
Kl.17 var sviðaveisla Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur(SJÓR) í aðstöðu félagsins.
Þar sem Stefán bróðir er á landinu í augnablikinu nýttum við tækifærið um kvöldið og héldum systkinaveislu.