Föstudagur 30. október
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Seinni partinn hitti ég Erik vin minn, en hann er hér á landi í stuttri vinnuferð að skrifa um Ísland í ferðatímarit.
Sýndi ég honum m. a. Alþingi.
Um kvöldið lá leiðin í heimsókn til Hildar systur.
Fimmtudagur 29. október
Kl.9 hófst Norðurlandaráðsþingið á fyrirspurnatíma til norrænu samstarfsráðherranna.
Kl.15 lauk þinginu.
Kl.18 var flug til Kaupmannahafnar og kl.20:10 til Keflavíkur.
Miðvikudagur 28. október
Kl.9 hófst fundur Norðurlandaráðs.
Kl.15 fór ég í viðtal við Danmarks Radio um norrænt samstarf, aðildarumsókn Íslands að ESB og um stöðuna á Íslandi almennt.
Kl.18:30 bauð Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, okkur Íslendingunum í móttöku.
Kl.20-23 var kvöldverður flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Þriðjudagur 27. október
Kl.8 var fundur flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.9-12 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.14:30 var Norðurlandaráðsþingið sett.
Á þinginu fékk ég tækifæri til að fara í andsvar við Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, til að spyrja hann um möguleg lán til Íslands.
Um kvöldið var móttaka í Vasasafninu.
Mánudagur 26. október
Kl.9:30 hófst fundur í flokkahópi miðjumanna í Norðurlandaráðinu.
Í hádeginu tók ég þátt í ráðstefnu Velferðarseturs Norðurlandanna í menningarhúsinu í Stokkhólmi, en hún fjallar um atvinnuleysi ungs fólks.
Þar var ég með í hringborðsumræðunum.
Eftir hádegi hélt flokkahópafundurinn áfram.
Kl.17-20 var fundur Norðurlandaráðs um loftslagsmál.
Sunnudagur 25. október
Kl.14:15 var flug til Kaupmannahafnar og þaðan flug kl.20:15 til Stokkhólms.
Á morgun hefst Norðurlandaráðsþingið sem að þessu sinni er haldið í Stokkhólmi.
Laugardagur 24. október
Í dag kl.11 hófst kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi.
Þingið var haldið í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötuna í Hafnarfirði.
Svona var dagskrá þingsins.
Þingið tókst mjög vel og stóð til 17:30.
Eftir þingið fór hluti fulltrúanna saman út að borða.