Föstudagur 25. júní
Í morgun birti mbl.is sjónvarpsviðtal við mig um frumvarpið sem ég lagði fram í gær um bætta umræðuhefð á Alþingi.
Kl.9-11 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem Ármann Höskuldsson, jarðfræðingur, sagði okkur frá elgosinu í Eyjafjallajökli.
KL.13-17 var ráðstefna Landssamtaka heilbrigðisstofnana á Grand hótelinu þar sem fjallað var um hagræðingu í heilbrigðisþjónustunni og hvernig hún yrði árið 2015.
Var ég ein af frummælendum á ráðstefnunni og sat í pallborði.
Kl.20 fór ég í skemmtilegt kvöldverðarboð til Hildar systur.
Fimmtudagur 24. júní
Kl.10 hófst fundur á Alþingi.
Í dag var dreift á Alþingi frumvarpi mínu um breytt þingsköp þannig að fastari rammi yrði um ræðutíma, þ.a. ræðutími yrði ákveðinn fyrirfram á Alþingi og tímaáætlanir stæðust.
Þannig yrðu vinnubrögðin nútímalegri dags daglega og fyrir þinglok myndi málþóf leggjast af.
Samhliða þessari breytingu væri eðilegt að styrkja sdtöðu stjórnarandstöðunnar s.s. með því að stjórnarandstaðan væri líka með formennsku í fastanefndum Alþingis, að minni hluti þings gæti knúið á um þjóðaratkvæðagreiðslu um mjög umdeild mál og annað slíkt.
Hér er frumvarpið í formi pistils hér á heimasíðunni og hér er frétt af ruv.is um málið.
Miðvikudagur 23. júní
Morguninn fór í að klára að vinna mál sem ég mun leggja fram á Alþingi.
Kl.13 fórum við mamma og Ingunn systir í ferðalag um Suðurlandið því mamma á afmæli í dag.
Keyptum við blóm í Hveragerði og jarðaber og lífrækt ræktað grænmeti á Flúðum.
Við áðum líka á nokkrum stöðum s.s. á Þingvöllum í einmuna blíðu.
Um kvöldið fór ég í góða göngu í Heiðmörk með Heiði vinkonu.
Þriðjudagur 22. júní
Kl.10 tok ég viðtal á Alþingi.
Kl.12:15 var fundur í sjósundsdeild Sundssambands Íslands(SSÍ) í aðstöðu sambandsins í ÍSÍ.
Um kvöldið grilluðum við lax.
Kl.20:00-22:30 sótti ég fund Skotvís og Skotreynar í Álfsnesi þar sem gengið var frá ályktun vegna draga að verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð, en skotveiðimenn leggja áherslu á að áfram verði leyfðar hefðbundnar veiðar á svæðinu.
Mánudagur 21. júní
Kl.10:45 hófst hádegisverður á upplýsingaskrifstofu finnska þingsins í boði miðjumanna i Norðurlandaráði.
Kl.11:15 hófst kynningarfundur miðjumanna í Norðurlandaráði og miðjumanna í Evrópuþinginu í tilefni útgáfu bókarinnar Kreppa.
Bókin Kreppa fjallar um bankahrunið á Íslandi og lærdóma sem draga má af því.
Flutti ég erindi á fundinum.
Kl.18:25 var flut til Köben og þaðan heim.
Var ég komin til Íslands um kl.20:55.
Sunnudagur 20. júní
Kl.11 vorum við Benedikt Jóhannesson og Helgi Hjörvar í beinni útsendingu í þættinum Sprengisandi hjá Sigurjóni Egilssyni á Bylgjunni.
Kl.16:25 var flug til Stokkhólms og þaðan til Helsinki.
Á mánudagsmorgni tek ég þátt í kynningarfundi flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði í Helsinki þar sem kynnt er bók um bankahrunið á Íslandi, en bókin ber heitið Kreppa.
Lenti ég í Helsinki kl.00:50 eftir miðnætti.
Laugardagur 19. júní
Um miðjan daginn fórum við Hildur systir í okkar eigið kvennahlaup inn Búrfellsgjá og upp á Búrfell.
Búrfellsgjá er hrauntröð sem liggur vestur úr Búrfelli.
Hrauntröðin er farvegur glóandi kviku sem kom upp úr gosi og fyllti kvikan tröðina upp á barma.
Í lok eldvirkninnar tæmdist hrauntröðin.
Talið er að hraunið hafi runnið fyrir um 7000 árum.
Kl.20 fórum við Hildur systir, Jón Áskell og Heiður á Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu.
Það er bara til eitt orð yfir sýninguna og það er orðið -stórkostleg-