Föstudagur 30. apríl
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem Einar Karl Birgisson kynnti Latabæjarverkefnið.
Fór síðan á Alþingi og tók þátt í umræðum um að þeir sem eru 18 ára og yngri fari ekki í ljósabekki þar sem útfjólubláu geislar ljósa bekkjanna auka talsvert áhættu á að fá alvarlegt húðkrabbamein.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar var fjallað um umræður sem ég tók þátt í á þinginu um ein hjúkskaparlög fyrir allt í landinu.
Um kvöldið lá leiðin til Siglufjarðar.
Fimmtudagur 29. apríl
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi þar ég tók þátt í umræðum um störf þingsins.
Kl.11:30-13:00 var fyrsta vakt mín á forsetastóli.
Kl.13:30-15:00 var önnur vakt mín á forsetastóli og sú þriðja kl.18-19.
Tók ég þátt í umræðum um samgönguáætlun.
Kl.20 var fundur framsóknarmanna í Garðabæ þar sem gengið var frá framboðslista okkar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Hér eru nöfnin á listanum.
Miðvikudagur 28. apríl
Kl.10 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.12 hófst fundur á Alþingi.
Fundi var slitið frekar snemma vegna útfarar Þorvaldar Garðars, fyrrum forseta Alþingis.
Á leiðinni heim leit ég við í te til mömmu.
Um kvöldið skrapp ég til Heiðar, vinkonu.
Þriðjudagur 27. apríl
Kl.10:15-12:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem ég spurðist fyrir um vinnu allsherjarnefndar varðandi frumvarpið um eina hjónabandslöggjöf.
Hér er frétt um góð viðbrögð biskups við málinu og hér er ræða hans(kaflinn um eina hjónabandslöggjöf er sá næst aftasti á undan lokaorðum).
Kl.14 fundaði ég á Hótel Borg.
Kl.16 skrapp ég heim.
Kl.17:30-18:45 var mín vakt í forsetastóli.
Var síðan í þinginu til kl.23 og náði að mæla fyrir þingsályktun minni og fleiri um bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkasýkingum, en þær valda m.a. eyrnabólgum.
Mánudagur 26. apríl
Kl.11 var fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.17 skrapp ég í sjósundið, en í dag var hitastig sjávar 3,3 gráður.
Kl.20 var fundur hjá framsóknarmönnum í Garðabæ.
Þaðan fór ég á Players á fund hjá Skotvís þar sem fjallað var um meðhöndlun á villibráð og um drög að frumvarpi um heildarendurskoðun skotvopnalöggjafarinnar.
Sunnudagur 25. apríl
Dagurinn fór í lestur gagna og tiltektir.
Seinni partinn vann ég í afgreiðslu mála hjá Norræna menningarsjóðnum á netinu.
Laugardagur 24. apríl
Kl.10-17 var haldinn miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins í Valsheimilinu á Hlíðarenda.
Að henni lokinni var frambjóðendaráðstefna fyrir frambjóðendur okkar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Hér er frétt mbl.is af fundinum.