Föstudagur 16. október
Kl.10-12 hitti ég norska lektorinn.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.14-15 hitti ég sænska sendiherrann.
Kl.16-17 var fundur í Norræna húsinu.
Kvöldið nýttist m.a. í að baka ljúffenga súkkulaðiostaköku.
Fimmtudagur 15. október
Kl.8.30-10:00 var fundur heilbrigðisnefndar Alþingis þar sem heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir hagræðingarkröfu í málaflokknum.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.11:30-13:00 var mín vakt á forsetastóli Alþingis.
Í dag var fjallað um fyrirspurn mína á vef Slóðavina.
Kl.16:00-18:30 var ég í EHÍ.
Kl.20 bauð forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, einum fulltrúa hvers þingflokks til kvöldverðar til heiðurs forseta sænska þingsins Per Westerberg og sendinefndar hans.
Miðvikudagur 14. október
Kl.8:30 var fundur forsætisnefndar Alþingis og þingflokksformanna ásamt rannsóknarnefnd bankahrunsins.
Kl.12-14 var ég í Norræna húsinu.
Kl.14:30-15:30 mín vakt í forsetastóli á Alþingi.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Í dag kom frétt á sksiglo.is um vígsluathöfnina á Sigló í gær og önnur frétt um gott samkomulag á heilbrigðisstofnuninni.
Búið er að dreifa fyrirspurn minni um kortlagningu slóða og vega á hálendinu á Alþingi.
Þriðjudagur 13. október
Kl.10:00-11:45 hitti ég norska lektorinn í Norræna húsinu.
Kl.12 hófst fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.13 var flug til Akureyrar.
Seinni partinn var vígsluhátíð nýju viðbyggingarinnar við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar á Siglufirði.
Á sínum tíma vann ég að því að koma þessari góðu framkvæmd á legg.
Hátíðin heppnaðist vel og er viðbyggingin hin glæsilegasta.
Kl.19:55 var flug til Reykjavíkur.
Kl.21-22 fór ég í EHÍ.
Mánudagur 12. október
Kl.10:00-16:30 var ég á vinnufundi þingflokks framsóknarmanna.
Kl.17 ætlaði ég með Heiði Björnsdóttur og Siv Oscarson í sjósund, en þar sem potturinn í Nauthólsvíkinni var ekki í lagi slepptum við sjósundinu að þessu sinni.
Vonandi verður hann kominn í lag n. k. mánudag.
Kl.20 buðu Sigmundur Davíð og Anna þingflokki framsóknarmanna í huggulegt heimboð.
Sunnudagur 11. október
Fyrri part dags nýttist tíminn í að lesa ýmis gögn og í tiltektir.
Kl.18-22 hélt tengdó, Húnbogi Þorsteinsson, upp á stórafmæli sitt með glæsilegum hætti á Grand hóteli, en hann er 75 ára í dag.
Bauð hann upp á dýrindis máltíð meðan gestir sáu um ræðuhöld og heimatilbúin skemmtiatriði.
Í dag var sett inn mynd nr. 16.000 í dagbókina, en ég hef nú skrifað myndskreytta dagbók í bráðlega 8 ár á netinu(8 ára afmælið verður 14. janúar 2010) .
Mynd nr. 16.000 er hér og var tekin í stórveislu Húnboga Þorsteinssonar.
Laugardagur 10. október
Í dag var fjölskyldan úti á landi í helgarfríi.
Morguninn fór í veiðiskap.
Um miðjan daginn var sofið og síðan haldið til veiða aftur um kvöldið.
Eftir að dimmt var orðið héldum við heim.