Föstudagur 23. júlí
Kl.7:30 vorum við Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður, í þætti á Rás 2 þar sem fjallað var um fréttir vikunnar sem er að líða s.s. Magna Enerygy málið.
Síðan skrapp ég á stofuna til pabba, en hann á afmæli í dag.
Fimmtudagur 22. júlí
Um miðjan daginn fór ég í viðtal við unga konu sem er að gera meistaraverkefni um nýju lögin um bann við nektarsýningum.
Seinni partur dags fór í útréttingar og í að undirbúa mig fyrir þátt sem ég fer í kl.7:30 á Rás 2 í fyrramálið.
Miðvikudagur 21. júlí
Dagurinn fór að hluta til í að vinna í tölvunni þar sem ég hef verið lítið tölvutengd upp á síðkastið.
Seinni hluti dagsins fór í að taka til í húsinu og í garðinum.
Um kvöldið komu Sigga og Golli í heimsókn.
Þriðjudagur 20. júlí
Um hádegisbil lá leiðin heim.
Kl.18:30 hittum við breska veiðifélaga okkar, þá Stuart, Ed og Brian ásamt Abigail, dóttur Stuart, en þau voru að klára veiðitúrinn sinn.
Við höfum veitt með þeim félögum nokkrum sinnum á Austurlandi.
Þeir félagar voru eiturhressir að venju.
Abigail hafði veitt 25 punda lax í ferðinni og var það annar laxinn sem hún landar á ævinni.
Mánudagur 19. júlí
Dagurinn nýttist í útivist með krökkunum í bongóblíðu.
Í dag var heiðskírt og yfir 20 gráðu hiti.
Sunnudagur 18. júlí
Kl.11 lá leiðin suður með viðkomu í sumarbústaðnum hjá tengdó, Erlu og Húnboga.
Þaðan lá leiðin út á Snæfellsnes að hitta Ingunni og fjölskyldu, Leif og fjölskyldu, Gunna Óla og fjölskyldu og Ellu og Gulla í blíðunni.
Laugardagur 17. júlí
Um morguninn felldum við tjöldin og fengum okkur morgunhressingu.
Kl.11 gengum við af stað inn að Héðinsfjarðargöngunum og svo út með Héðinsfjarðarvatni að vestanverðu.
Þaðan lá leiðin upp í Hestskarðið.
Gangan gekk vel fram að því að við vorum komin ofarlega í fjallið, en þá var þokan orðin svo þétt að við þurftum að leita að skarðinu.
Eftir að við fundum skarðið komst aftur góður skriður á hópinn.
Vorum við komin niður í Siglufjörð kl.18.
Þar með lauk stórskemmtilegri göngu þessa duglega gönguhóps.
Tveir gengu á strigaskóm alla leið og drógu hvergi af sér.
Sá yngsti í göngunni var 13 ára dugnaðar forkur, Gabríel Frostason.
Her er linkur á frétt sksiglo.is af göngunni góðu.