Föstudagur 29. janúar
Kl.12 hófst fundur á Alþingi.
Kl.14 mætti ég á aðalfund Ríkisútvarpsins í Efstaleiti.
Seinni partinn nýtti ég m.a. í göngu um Seltjarnarnesið.
Fimmtudagur 28. janúar
Kl.13:20 var flug heim.
Fór ég síðan beint af flugvellinum í klúbbinn Geysi í Skipholtinu til að sýna myndir og segja frá ferðalagi til Albaníu síðast liðið haust.
Var komin heim um kl.18:30.
Miðvikudagur 27. janúar
Í gær hitti ég Dagfinn Höybraaten, formann Kristelig folkeparti í Noregi og ræddi við hann um tillögu um skýrari afstöðu Norðmanna vegna lána til Íslands án tengingu við icesave, sem þrír þingmenn flokksins hafa lagt nýlega fram á Stórþinginu.
Hér er tillagan og frétt mbl.is um hana.
Kl.8-9 var fundur valnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.9 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Á fundinn kom m.a. félagsmálaráðherra Danmerkur, Karen Elleman, til að segja okkur frá því sem Danir eru að gera til að auka lífsgæði eldri kynslóðarinnar.
Síðan skoðuðum við tvö hjúkrunarheimili í Kaupmannahöfn.
Fyrst Höjdevangs Sogns plejehjem og síðan Plejecenter Sölund, en það er fjölmennasta hjúkrunarheimili Danmerkur(og líklega Evrópu) og búa þar 400 manns.
Hér er mjög mikið lagt upp úr því að reyna að veita eldri borgurum þjónustu heima eins lengi og hægt er til að auka lífsgæði eldri borgara og minnka kostnað.
Sá á netinu að ísbjörninn fyrir norðan var felldur og að fólk er beðið að hafa varann á sér.
Maður fer af þessu tilefni að velta fyrir sér öryggismálum í tengslum við útvist til fjalla á Íslandi.
Þriðjudagur 26. janúar
Kl.8 var fundur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Kl.9:30 hófst fundur stjórnar miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.13 hófst fundur miðjumanna í Norðurlandaráði þar sem m.a. Daniel Gros, fulltrúi framsóknarmanna í stjórn Seðlabankans,fór yfir efnahagsstöðuna á Íslandi.
Kl.16:30-18:30 var sameiginlegur fundur nefnda Norðurlandaráðs um formennskuáætlun Íslands í Norðurlandaráðinu, formennskuáætlun Danmerkur í norræna ráðherraráðinu og um jafnréttismál.
Kl.20 var kvöldverður í boði Dana þar sem ég hitti m.a. vini mína Högna Djurhuus og Eyrith Guttensen Leyni frá Norræna félaginu í Færeyjum.
Ég hef verið hugsi um nokkurt skeið hvað varðar þau skilyrði sem Alþingi setti við icesave 1 í lokaafgreiðslunni 28. ágúst 2009, sérstaklega í ljósi atkvæðaskýringar Guðbjarts Hannessonar, formanns fjárlaganefndar, þann dag og síðan upplýsinga sem hann veitti í ræðum um icesave 2 í lok desember 2009.
Hér eru bæði atkvæðaskýring og ræður Guðbjarts.
Maður hlýtur að velta fyrir sér hvort skilyrðið sem Guðbjartur nefnir hafi verið dropinn sem fyllti mælinn hjá viðsemjendum okkar, þ.e.a.s. hvort við hefðum ekki lent í icesave 2 ef þetta skilyrði hefði aldrei litið dagsins ljós.
Mánudagur 25. janúar
Kl.8 var flug til Kaupmannahafnar, en þar mun ég stýra fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs næstu daga.
Í dag var tasvert frost í Kaupmannahöfn og mun kaldara en á Íslandi.
Um kvöldið hitti ég Bergþór Skúlason, en hann vinnur nú í Kaupmannahöfn við að koma á rafrænum reikningsskilum í Evrópusambandslöndunum.
Sunnudagur 24. janúar
Um miðjan daginn heimsótti ég Björn Jónsson á Landakotsspítala.
Kl.18 komu Elín Björk, mamma og tengdó til okkar í önd í tilefni þess að Húnbogi er 25 ára í dag.
Norska Dagbladet hafði einnig samband til að leita frétta af stöðu efnahagsmála hér á Íslandi.
Hér er fréttin af dagbladet.no og frétt á svipuðum nótum af ruv.is.
Í dag hlustaði ég á færeyskan pilt, Hjalta Bogason, son kunningja míns syngja með gullfallegri röddu "Nóttin var svo ágæt ein" á færeysku á youtube.
Hér er Hjalti Bogason á youtube.
Laugardagur 23. janúar
Kl.9:00-13:30 var ég á skyndihjálparnámskeiði í EHÍ.
Kl.14 var sonur Þorfinns Hilmarssonar og Ellenar Magnúsdóttur Hlíðberg skírður í Grafarvogskirkju.
Fékk hann fallegt nafn, Aron Logi.
Kl.19 hófst glæsilegt þorrablót Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur(SJÓR).
Mikið fjör var á blótinu að venju og náðum við m.a. að fylgjast með Íslandi vinna Danmörku í Evrópukeppninni í handbolta milli rétta.