Föstudagur 22. janúar
Kl.9:30 skutlaði Eyðun Húsgarð mér út á flugvöll í Færeyjum.
Kl.11 var flug til Íslands.
Kl.18-24 hittumst við æskuvinkonurnar, Heiður, Hróðný og Anna Hrönn, heima hjá Hróðnýju á Holtsgötunni.
Fimmtudagur 21. janúar
Kl.11 hélt ég fyrirlestra í Höydalar-skóla.
Síðan heimsótti ég Martin Næs í menntamálaráðuneytinu í Færeyjum, áður en leiðin lá um Þinganes.
Kl.13:30 mætti ég í fréttaviðtal hjá Boga Gottfred, fréttamanni á sjónvarpinu í Færeyjum.
Viðtalið var tekið upp á ræðismannsskrifstofu Íslands í Fútastovu.
Næst skoðaði ég skrifstofur stjórnmálaflokkanna hér og síðan sýndi Kári P. Höjgaard mér færeyska fánann í þingsalnum í Lögþinginu.
Kári hefur barist fyrir því að fáninn prýddi Lögþingið og var hann settur í salinn á þriðjudaginn síðasta, 19. janúar.
Kl.15 heimsótti ég Nils Halm, framkvæmdastjóra Norðurlandahússins í Færeyjum, á skrifstofu hans til skrafs og ráðagerðar.
Kl.17:30 hittumst við Heri Árnason Simonsen, útvarpsmaður á Rás 2 í Færeyjum, á Sosialurin til að taka upp útvarpsviðtal sem verður sent út næsta mánudagsmorgun kl.10.
Kl.18:30 hófst glæsilegt matarboð stjórnar Norræna félagsins í Færeyjum heima hjá Hallsteini Sigurðssyni, en það var Norræna félagið sem bauð mér hingað til að halda tvo fyrirlestra.
Það er bara eitt að segja eftir slíka veislu, "Færeyingar eru höfðingjar heim að sækja".
Miðvikudagur 20. janúar
Kl.11 var ég í myndatöku á Sosialurin í Færeyjum vegna fréttar um konur og stjórmál.
Síðan skrapp ég í Barbaras hus, heim til Eiríks Lindenskov.
Hann og fjölskyldan ráðgerir að opna veitingastað í húsinu, en það er með því elsta í Þórshöfn og því friðað.
Kl.12 var glæsilegt matarboð heima hjá Poul Michelsen, þingmanni og Sólrúnu Michelsen, rithöfundi.
Poul og Líggjas eru gamlir badmintonfélagar pabba míns.
Kl.14 lá leiðin í heimsókn til Bjarta Mohr, útgerðarmanns í Ísbirninum.
Síðan nýttist tíminn í að snurfusa fyrirlestur kvöldsins.
Kl.19 var ég í Norðurlandahúsinu í Færeyjum að halda fyrirlestur um bankahrunið á Íslandi.
Mjög góð mæting var á fyrirlestrinum og góðar spurningar í lok hans.
Það er greinilegt að það er fylgst vel með því sem skeður á Íslandi hér í Færeyjum.
Að fyrirlestri loknum borðaði ég heima hjá ræðismanni Íslands í Færeyjum, Alberti Jónssyni.
Þriðjudagur 19. janúar
Kl.11 mætti ég í Lögþingið í Færeyjum til að fylgjast með upphafi fundar.
Þar hitti ég marga vini sem ég hef átt gott samstarf við í stjórnmálum í gegnum árin.
Náði ég skoða þinghúsið og fara í sjónvarpsviðtal áður en ég tók göngurúnt um Þórshöfn.
Um miðjan daginn kláraði ég fyrirlesturinn fyrir kvöldið.
Kl.17 bauð Bergtóra Högnadóttir Joensen, þingmaður á Lögþinginu mér og nokkrum þingkonum á Lögþinginu heim til sín í mat og til skrafs og ráðgerðar.
Kl.19 hófst síðan fyrirlestur minn um konur og stjórnmál í boði Norræna félagsins í Færeyjum í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn.
Góð mæting var á fundinn og líflegar umræður um hvernig megi auka hlut kvenna í færeyskum stjórnmálum, en hlutfall þeirra fór í 21% í síðustu þingkosningum.
Að fyrirlestri loknum var kaffi í boði stjórnar Norræna félagsins í Færeyjum.
Mánudagur 18. janúar
Var á skrifstofunni allan daginn að undirbúa fyrirlestra fyrir Færeyinga.
Fór einnig í viðtal við færeyskt útvarp og dagblaðið Sosialurin.
Kl.19:10 var flug til Færeyja.
Á flugvellinum beið Hallsteinn Sigurdsson eftir mér en hann er í stjórn Norræna félagsins í Færeyjum.
Hér er ein af auglýsingunum sem ég hef séð af fyrirlestrunum sem ég mun flytja.
Sunnudagur 17. janúar
Kl.11:15 vorum við Ragnheiður Ríkharðssdóttir og Árni Páll Árnason í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.
Þar ræddum við um stöðu efnahagsmála, icesave og fleira.
Laugardagur 16. janúar
Hér er umfjöllun um annan tveggja fyrirlestra ég mun halda í Færeyjum næstu daga.
Hinn fjallar um bankarhrunið á Íslandi
Kl.9-16 var ég á skyndihjálparnámskeiði.
Kl.19 var fordrykkur hjá Unu Maríu og Helga.
Kl.20 hófst þorrablót framsóknarmanna í Lionssalnum í Auðbrekku í Kópavogi.
Borðin svignuðu undan kræsingum að venju.
Að borðhaldi loknu var dansað fram á rauða nótt.