Föstudagur 27. ágúst
Kl.8:30-10:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.10:30-12:00 var fundur í iðnaðarnefnd Alþingis.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem Bergur Þórisson kynnti bandarískan tónlistarsumarskóla sem hann fór í.
Fimmtudagur 26. ágúst
Kl.10:30 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.12-13 hittumst við Heiður, Sigga Björns og Þorsteinn Einars, bekkjarfélagar úr 6-S í MR, en við erum að skipuleggja bekkjarhitting í september.
Kl.13-16 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis þar sem fulltrúar úr samninganefndum okkar við ESB komu til skrafs og ráðagerðar.
Kl.17:30-19:00 var tími til að fara með nokkrum hressum konum úr Lögmannafélaginu í sjósund, en þær voru að prófa sjósundið í fyrsta sinn.
Veðrið var frábært og hitastig sjávar 12,6 gráður.
Um kvöldið skrapp ég til Védísar og fjölskyldu.
Miðvikudagur 25. ágúst
Kl.13 sýndi ég gestum Alþingi.
Seinni partinn hitti ég einn badmintonfélaga minna sem býr nú erlendis.
Kl.20 fórum við Heiður og Dóra í Nesstofu á fyrirlestur Garðyrkjufélagsins um jurtagarðinn við Nesstofu.
Þriðjudagur 24. ágúst
Dagurinn fór í veiðiskap og berjamó á Vesturlandi.
Vorum við komin heim um kl.23.
Mánudagur 23. ágúst
Kl.8:30-10:30 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis
Kl.12:00-13:30 hélt Ivar B. Neumann fyrirlestur í stofu 101 í Odda um af hverju Norðmenn eru ekki meðlimir í ESB.
Kl.16:00-18:15 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Sunnudagur 22. ágúst
Dagurinn fór í tiltektir, matargerð og annað heimilisstúss.
Um kvöldið kom Húnbogi heim úr Hvalfirðinum, en hann fer í lok ágúst í fyrirlestraferð til Noregs og er að fara að undirbúa sig fyrir hana.
Laugardagur 21. ágúst
Um morguninn kl.9:30 fór ég hjólandi að JL-húsinu með íslenska og norska fánann til að hvetja Friðleif bróður minn í hlaupakeppninni, en ég hélt hann myndi keppa í 10 km hlaupinu.
Missti ég af honum því hann hljóp hálfmaraþon, 21 km, í staðinn, sem var ræst fyrr og hann því löngu hlaupinn framhjá.
Fylgdist ég síðan með skemmtiskokkinu í miðbænum.
Fjöldi manns tók þátt í því og skemmti sér stórvel.
Friðleifur bróðir, Óla og strákarnir þeirra eru öll góðir hlaupagarpar.
Friðleifur bróðir hljóp í dag hálfmaraþon, 21 km, á 1:19:50. Var hann í 10 sæti af 711 þátttakendum.
Fannar Óli Friðleifsson hljóp á 55:45 í 10 km hlaupinu og Friðleifur Kr. Friðleifsson á 13:38 í 3 km skemmtiskokkinu.
Bjarki Þór hljóp ekki því hann var á Akureyri og Óla hvíldi meiddan ökkla eftir Laugarvegshlaupið.
Seinni partinn leit ég inn til mömmu í rjúkandi vöfflukaffi í tilefni menningarnætur í Reykjavík.
Um kvöldið hjólaði ég í bæinn til að hitta Ingunni systur og fjölskyldu á tónleikum með Hjálmum.
Fylgdumst við líka með ómissandi lokaatriði menningarnætur, flugeldasýningunni.