Föstudagur 12. mars
Kl.10-12 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.13:00-16.30 var fundur heilbrigðisráðuneytisins um framtíð heilbrigðisþjónustunnar og möguleika til hagræðingar innan þjónustunnar.
Kl.17-19 tók ég á móti Rótarýklúbbi Seltjarnarness á Alþingi og sýndi þeim þingið.
Kl.19:30 lá leiðin til Siglufjarðar.
Fimmtudagur 11. mars
Kl.8:30-10:00 var sameiginlegur fundur heilbrigðisnefndar og fjárlaganefndar Alþingis um heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Kl.11:40 hófst opinn fundur Orators og Ísafoldar um ungt fólk og ESB á Háskólatorgi.
Kl.19 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi því gert var ráð fyrir því að halda þingfund kl.19:30 og etv. setja lög á verkfall flugumferðastjóra.
Ekki varð af þingfundi þar sem flugumferðarstjórar frestuðu verkfalli sínu.
Kl.20-23 var ég á kúrekahátíð Zontaklúbbsins Sunnu í félagsheimili hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ.
Mikið fjör var á hátíðinni, tískusýning, happdrætti, erindi og fleira.
Miðvikudagur 10. mars
Kl.13-16 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.19:30-21:45 var ég á fundi í Kiwanisklúbbnum Hraunborg í Hafnarfirði þar sem ég hélt kynningarerindi um sjósund og sýndi myndir.
Þriðjudagur 9. mars
Kl.10:15-12:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem ég tók til máls um samstarf flokkanna vegna icesave og um lán frá Norðrulöndunum eins og hér kemur fram í frétt á mbl.is.
Kl.14 var fundur vegna útivistarmála.
Kl.16 hófst mín vakt á forsetastóli.
Kl.17:30-20:15 var stjórnarfundur í Sundsambandi Íslands(SSÍ) í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardalnum.
Mánudagur 8. mars
Kl.10 fór ég af stað labbandi niður í þing.
Kl.11 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingiá umræðum um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um icesave.
Kl.17 var sjósund og var hitastig sjávar 1.1 gráða.
Kl.17:45 var beint símaviðtal við Bylgjuna um fánamáli(hér er fyrirspurn mín), en það gengur út á að breyta lögum þ.a. bændur fái heimild til að merkja íslenskar búvörur með íslenska fánanum.
Þannig geti neytendur erlendis séð hvaðan varan er að koma og hér á landi verður hægt að aðgreint innlendar vörur frá innfluttum á auðveldan hátt.
Kl.19:15 var ég komin heim úr sjósundinu.
Sunnudagur 7. mars
Um miðjan daginn húkkaði ég mér far frá Siglufirði inn í Fljótin þar sem Birkir Jón og foreldrar hans biðu tilbúin til brottfarar suður.
Var komin heim að norðan um kl.20.
Laugardagur 6. mars
Kl.14 var vinur minn, Óskar Berg Elefsen, jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju.
Séra Sigurður Ægisson jarðsöng fyrir fullri kirkju.
Að athöfn lokinni var erfidrykkja í safnaðarheimilinu.
Óskar var mjög öflugur göngugarpur og hafði gaman af að ganga á m.a. fjöll við Siglufjörð.
Hér eru mynd sem ég tók af honum í Jónsmessugöngu, en þann dag gekk hann 20. km.(þessi mynd prýddi baksíðu sálmaskrárinnar í dag).
Hér er hann á fjallstoppum , að mynda Ljósbera í Kálfsdal, á sjávarútvegssýningu, með kórfélögum og í lok kórtónleika á Siglufirði.
Hér er umfjöllun um Óskar Berg Elefsen sem birtist á sksiglo.is í dag.
Seinni partinn vann ég að þingsályktunartillögu sem ég hyggst leggja fram á Alþingi.
Vann líka í smáviðhaldi í húsinu.
Um kvöldið var fundur í Cellunni, gönguklúbbi sem ég er í, heima hjá einum meðlima klúbbsins, Sigurði Steingrímssyni.