Föstudagur 18. júní
Sá í morgunsárið að Mari Kiviniemi verður líklega næsti forsætisráðherra Finnlands, en við höfum hist á vettvangi Norðurlandaráðs.
Kl.10 sýndi ég nokkrum rótarýgestum frá Kansas Alþingi.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Um kvöldið fórum við Heiður, Anna Hrönn og Hróðný, á tónleika hljómsveitarinnar Hjaltalín og Sinfóníunnar í Háskólabíói.
Tónleikarnir voru stórgóðir.
Eftir tónleikana fórum við heim til Önnu Hrannar.
Fimmtudagur 17. júní
Dagurinn fór í að ganga frá gögnum og taka til í húsinu.
Kl.18 kom hluti stórfjölskyldunnar í grill til okkar.
Miðvikudagur 16. júní
Þar sem þingfundur hafði staðið til morguns hófst nýr þingfundur klukkutíma síðar en áætlað var eða kl.11.
Tók ég til máls í umræðum um breytinar á stjórnarráðinu(fækkun ráðuneyta).
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.17-18 voru greidd atkvæði og lauk síðan þingfundi á Alþingi.
Þar með er komið svokallað þinghlé sem verður lotuskipt að þessu sinni því þingið kemur aftur saman í næstu viku, 24. júní, til að ræða stöðu heimilanna.
Kl.19-23 var grillveisla í Hafnarfirði þar sem framboðslisti framsóknarmanna hélt upp á góðan árangur, en B-listinn jók fylgi sitt um helming frá síðustu kosningum.
Í dag birtist þessi grein, um grænlenska fánann, eftir mig í Grönlandsposten.
Þriðjudagur 15. júní
Um morguninn birtist þessi frétt á pressan.is um stefnu flokksins varðandi aðildarumsókn að ESB.
Kl.10 hófst fundur á Alþingi.
Kl.12:15-13:30 var fundur hjá Rótarýklúbbi Kópavogs í Turninum í Kópavogi.
Kl.15 tók ég viðtal.
Kl.18-19 var fyrri vakt mín á forsetastóli á Alþingi.
Seinni vaktin var um miðja nótt.
Þingfundur stóð til morguns og var ég komin heim um kl.6:30
Mánudagur 14. júní
Kl.12 hófst fundur á Alþingi með fyrirspurnum til ráðherra.
Fyrsta fyrirspurnin var mín og fjallaði um rýmri notkun þjóðfánans.
Hér er þingsályktunartillaga sem ég hef lagt fram á Alþingi um rýmri notkun þjóðfánans.
Hér er frétt af svari forsætisráðherra á ruv.is um rýmri fánareglur.
Kl.20 hófst formannafundur framsóknarmanna í SV-kjördæmi í aðstöðu flokksins að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Kl.21:00-22:30 voru eldhúsdagsumræður á Alþingi.
Sunnudagur 13. júní
Í dag fórum við í göngu út að Skaftá.
Seinni partinn tókum við saman og ókum áleiðis heim.
Á leiðinni ókum við í gegnum öskuský frá eldgosinu í Eyjafjallajökli.
Hróðný varð eftir hjá mömmu sinni í bústað þeirra við Fljótshlíðina.
Tveir refir, læða og yrðlingur, voru á ferð við bústaðinn.
Laugardagur 12. júní
Um miðjan daginn fórum við í sund á Kirkjubæjarklaustri.
Seinni partinn fórum við í göngutúr.
Um kvöldið var grilluðu nautalund með tilbehör.