Föstudagur 20. ágúst
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness, en fyrirlesari fundarins var Einar Benediktsson, sendiherra.
Seinni partinn fórum við mamma og Ingunn systir á Suðurland í gróðrarstöðina Engi að kaupa lífrænt ræktað grænmeti.
Fimmtudagur 19. ágúst
Kl.13-16 var fundur í iðnaðarnefnd Alþingis þar sem við fórum yfir byggðaáætlun.
Eftir fundinn settumst við Margrét Tryggvadóttir og Lilja Mósesdóttir niður úti á Thorvaldsen í góða veðrinu.
Seinni partinn fórum við Hákon á stjá til að klára skólabókarkaupin hans.
Miðvikudagur 18. ágúst
Dagurinn fór í að vinna í gögnum, skoða útfærslur á gluggatjöldum og redda ágreftri á bikara fyrir Hákon.
Um kvöldið nýttist tíminn í að gera heimatilbúið pestó og hjóla út í Suðurnes.
Þriðjudagur 17. ágúst
Dagurinn fór m. a. í að snattast með Hákoni til að útvega sem flestar skólabækur fyrir næsta skólavetur sem hefst nú í lok vikunnar.
Kl.18:00-19:30 var fundur í stjórn Sundsambands Íslands í aðstöðu ÍSÍ í Laugardalnum.
Mánudagur 16. ágúst
Kl.8:30-22:00 var dagsfundur forsætisnefndar Alþingis í Borgarnesi.
Fórum við yfir starfsáætlun Alþingis fyrir næsta vetur, drög að nýjum þingsköpum, fengum Ríkisendurskoðanda og Umboðsmann Alþingis í heimsókn og fleira.
Sunnudagur 15. ágúst
Dagurinn fór í að ganga frá húsinu og keyra suður.
Var komin heim um kl.16:30.
Laugardagur 14. ágúst
Kl.13 lögðum við Raggi Ragg, göngugarpur, upp í góða fjallgöngu.
Gengum við inn Kálfsdalinn og þaðan upp á eggjarnar við Nesdal og svo upp á Staðarhólshyrnu.
Á bakaleiðinni lá leiðin beint niður, vestur af fjallinu.
Þar með get ég hakað við Staðarhólshyrnu á tékklistanum mínum, en mörg fjöll eru enn eftir á honum sem betur fer.
Um kvöldið skruppum við Anton á Allann.