Föstudagur 4. desember
Kl.10 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem ég spurði Björgvin G. Sigurðusson út í ummæli félagsmálaráðherra, Árna Páls Árnasonar, um alvöruleysið í aðhaldsaðgerðum í fjárlagafrumvarpinu sem féllu í viðtali í morgunútvarpinu fyrir stuttu.
Í þessu viðtali vegur Árni Páll harkalega að öðrum ráðherrum og þá sérstaklega að Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, sem ber ábyrgð á að útdeila römmum til ráðuneyta í fjárlagafrumvarpinu.
Er viðtal þetta með eindæmum.
Kl.11:30-13:00 var mín vakt á forsetastóli.
Um kvöldið lá leiðin til Siglufjarðar.
Á leiðinni stoppuðum við hjá vinum okkar Ellu og Magnúsi á Hrauni í Sléttuhlíðinni.
Þau eru höfðingjar heim að sækja.
Fimmtudagur 3. desember
Í dag hélt umræðan um icesave áfram.
Kl.13 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli.
Um kvöldið heimsótti ég vin minn, Björn Jónsson.
Miðvikudagur 2. desember
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins og síðan atkvæðagreiðslum.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.18 flutti ég ræðu um ríkisábyrgðina vegna icesave-samninganna.
Kl.20-22 var jólafundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi.
Þriðjudagur 1. desember
Kl.8 vorum við Ólína Þorvarðardóttir í beinni útsendingu á Rás 2 þar sem við ræddum icesave, sjómannaafsláttinn og fæðingarorlofið.
Kl.12:30 fór ég í EHÍ.
Var síðan á skrifstofunni í þinginu.
Kl.17:30 var rúta frá Alþingi á Bessastaði, en kl.18 hófst 1.des. boð forseta Íslands.
Að boðinu loknum fór þingflokkur framsóknarmanna ásamt mökum heim til Eyglóar Harðardóttur í glæsilegt matarboð þar sem boðið var upp á indverska rétti.
Mánudagur 30. nóvember
Kl.10 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.10.30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum þar sem ég hvatti fjármálaráðherra til að biðja um tvíhliða fundi forsætisráðherra og fjármálaráðherra Íslands með breskum og hollenskum kollegum sínum.
Hér er frétt ruv.is um málið.
Hér er frétt mbl.is um málið.
Kl.11:15 fór ég í svínaflensusprautu.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli.
Um kvöldið elduðum við svartfugl.
Í fréttum Stöðvar 2 lét Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þau orð falla að hann efaðist um að Alþingi réði við endurreisn efnahagslífsins.
Um kl.22 skrapp ég aftur í þingið stutta stund.
Sunnudagur 29. nóvember
Kl.10 fékk ég far hjá Jónasi og Jurgitu í bæinn.
Dagurinn nýttist í að taka til og lesa gögn.
Laugardagur 28. nóvember
Kl.10 skrapp ég á BSÍ að hitta vini mína í EHÍ.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Var ég fyrst á mælendaskrá og ræddi um ríkisábyrgð vegna icesavesamningana.
Kl.11:20-11:50 var ég á Hótel Loftleiðum að fylgjast með vali á lista framsóknarmanna í Reykjavík fyrir næstu sveitastjórnarkosningar.
Þegar ég fór var verið að telja atkvæðin í fyrsta sæti.
Kl.12-13 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.13:30-15:00 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Að henni lokinn tók ég aftur til máls um icesavesamningana.
Kl.15 var mótmælafundur Hagsmunasamtaka heimilanna á Austurvelli.
Síðan fékk ég far með Helga í Hveragerði að hitta félaga mína í EHÍ á hótel Eldhestum.
Skemmtum við okkur hið besta fram eftir kvöldi.