Föstudagur 12. febrúar
Kl.12 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness í félagsheimilinu.
Kl.15 hófst útskrift í Endurmenntun Háskóla Íslands í Háskólabíói þar sem við samnemendurnir útskrifuðumst í fyrsta hollinu sem klárar leiðsögumennsku á háskólastigi.
Um kvöldið skuppum við Sigrún Sig. að hlusta á Varsjárbandalagði spila í Borgarskjalasafninu og láta ráða drauma okkar í tilefni Safnanætur.
Síðan lá leiðin í Mosfellsbæ til Írisar Sveinsdóttur, bekkjarsystur okkar.
Í dag birtist minningargrein mín um Steingrím Hermannsson í Morgunblaðinu, en hann var jarðsunginn sl. þriðjudag.
Fimmtudagur 11. febrúar
Kl.8 hófst fundur á Grand hótelinu um sjávarútvegsmál.
Dagurinn nýttist síðan í að vinna í málum fyrir þingið.
Um miðjan daginn skruppum við Hákon í hádegismat á veitingastaðinn góða Pottinn og Pönnuna.
Seinni partinn skokkaði ég í kringum golfvöllinn.
Miðvikudagur 10. febrúar
Átta manns hafa gefið kost á sér í prófkjör Neslistans vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor.
Prófkjörið fer fram laugardaginn 20. febrúar í Valhúsaskóla kl. 10-15.
Kl.15:30 var viðtalstími hjá mér á Alþingi.
Í dag birtist minningargrein mín um Björn Jónsson í Morgunblaðinu, en hann var jarðsunginn sl. mánudag.
Þriðjudagur 9. febrúar
Kl.9:30 var kaffi hjá Jöklarannsóknarfélagi Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Síðan skrapp ég í heimsókn til tengdó, Erlu og Húnboga.
Kl.13 var tími fyrir upptöku á viðtali um aðgerðir gegn atvinnuleysi hjá Silje í Norðurlandaráði.
Kl.14 var útför Steingríms Hermannssonar gerð frá Dómkirkjunni(sjá minningarein mína um hann föstudaginn 12. feb. hér í dagbókinni).
Síðan var erfidrykkja á Kjarvalsstöðum.
Kl.17 mættu Danfríður, Sigurbjörg og Stefán heim til mín á ritnefndarfund.
Mánudagur 8. febrúar
Kl.12 tók ég á móti færeyska sjónvarpsfréttamanninum, Boga Godtfred og Fiann Paul, ljósmyndara, á Alþingi.
Kl.15 var Björn Jónsson jarðsunginn frá Neskirkju.
Fjöldi manns var viðstaddur útförina(sjá minningargrein mína hér í dagbókinni þann 10. febrúar, en hún birtist þann dag í Morgunblaðinu).
Kl.20 var fundur í Slysavarnardeild kvenna á Seltjarnarnesi.
Sunnudagur 7. febrúar
Eftir morgunmat tókum við saman og gengum frá húsinu.
Síðan skruppum við í smá skemmtiferð.
Að henni lokinni lögðum við af stað í bæinn.
Var ég komin heim um kl.17:30.
Laugardagur 6. febrúar
Veðrið í dag var afar gott á fjöllum, sól og heiðskírt.
Um miðjan daginn fórum við í fína göngu í vetrarstillunni.
Gengum við um hraun og ísbreiður.
Seinni partinn hófst glæsilegt þorrablót þar sem við borðuðum, sungum og skemmtum okkur í góðra vina hópi.