Föstudagur 5. mars
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem Rótaractklúbburinn Geysir var kynntur.
Kl.17:30 fór ég af stað til Siglufjarðar í félagi við Birki Jón og foreldra hans.
Fimmtudagur 4. mars
Kl.9:30 fór ég í til Lilju í Greiðunni í klippingu.
Fór síðan á Alþingi og tók þátt í umræðum um heillaóskir til litáísku þjóðarinnar í tilefni 20 ára sjálfstæðis hennar.
Kl.13-15 sótti ég Iðnþing á Grand hótelinu.
Kl.15:30 tók Magne Kveseth, blaðamaður Altaposten í Noregi, viðtal við mig en hann er hér vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um icesave á laugardaginn.
Kl.17 lá leiðin á bíomyndina Avatar og kl.20 á aðalfund Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar(SÍH), sem haldinn var á Iðavöllum í Hafnarfirði.
Í dag var tveimur fyrirspurnum frá mér dreift á Alþingi.
Önnur er um fánamálið þ. e. um heimild til að nota fánann til að auðkenna innlendar búvörur frá bændum og hin um möguleg starfsréttindi leiðsögumanna.
Í dag var líka samþykkt gott mál á Alþingi, en það er kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja sem taka á gildi árið 2013.
Hér er frétt af mbl.is um kynjakvótann.
Miðvikudagur 3. mars
Kl.10 kaus ég utankjörstaða í Laugardalshöllinni í þjóðaratkvæðagreiðslunni um icesave.
Skrapp síðan í Sundsamband Íslands í ÍSÍ.
Kl.12:30 sýndi ég fjórum lögreglunemum frá Noregi og Finnlandi Alþingi, en þeir komu í fylgd Árna bróður.
Kl.13:30-15:00 var mín vakt í forsetastóli á Alþingi.
Um kl.15:30 bar ég fram fyrirspurn til landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra vegna umhverfismerkingar á sjávarafurðir.
Nágrannaþjóðir okkar hafa valið að merkja sínar sjávarafurðir með alþjóðlega MSC umhverfismerkinu, en hér má sjá að Færeyingar eru að umhverfismerkja síldina sína um þessar mundir.
Á Íslandi er unnið að nýju íslensku umhverfismerki á fisk, en ekki er ljóst hvenær það verður tilbúið.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Þriðjudagur 2. mars
Kl.10:15-12:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Þessa frétt sá ég á aftenposten.no.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi við nokkur mótmæli fyrir framan húsið.
Tók ég þátt í umræðum um kynjakvóta í stjórnir fyrirtækja og mælti síðan fyrir máli mínu um hámarksmagn transfitusýra í matvælum.
Hér er frétt af vísir.is um málið.
Fór ég svo beint úr þinginu upp á flokksskrifstofuna þar sem Framsóknarflokkurinn bauð fulltrúum Búnaðarþings 2010 til skemmtilegrar veislu.
Í veilsunni héldu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,formaður Framsóknarflokksins og Guðni Ágústsson, fyrrum formaður, hátíðarrræður.
Einnig tóku margir gestanna til mál og sungu svo undir tók í hverfinu.
Mánudagur 1. mars
Kl.11 var fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var fundur þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur á fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.17:30 var ég í símaviðtali á Bylgjunni um málið mitt og feiri um að ráðherrar sitji ekki jafnhliða ráðherradómi á þingi.
Um kvöldið fór ég í göngutúr og í te til mömmu.
Sunnudagur 28. febrúar
Kl.13:30 hófst setningarathöfn Búnaðarþings 2010.
Athöfnin var virðuleg og skemmtileg.
Síðan fórum við mamma að skoða nýju tannlæknastofurnar sem Ingunn systir er að opna ásamt nokkrum kollegum sínum í Vínlandsleið 16 í Grafarholt.
Tannlæknastofurnar eru mjög góðar og vel útbúnar.
Laugardagur 27. febrúar
Kl.8:30-14:00 var seinni dagur Sundþings 2010, ársþings Sundsambands Íslands(SSÍ).
Á þinginu voru m.a. Ernst Fridolf Backman og Óskar Ágústsson sæmdir gullmerki SSÍ fyrir ómetanleg störf í þágu sundíþróttarinnar á Íslandi.
Hér er pistill um framlag þeirra Ernst og Óskars.
Einnig var samþykkt almenn stefnumótun SSÍ til ársins 2020 og afreksstefna SSÍ.
Þá voru reglur um sund í sjó og vötnum(víðavatnssund eða náttúrusund) samþykktar.
Á þinginu var ég kjörin í stjórn SSÍ.
Hér er frétt af pressunni.is um það.
Að þingi loknu hélt nýja stjórnin stuttan fund.
Síðan lá leiðin í Síðumúlann að hjálpa Ingunni systur að þrífa tannlæknastofuna sem hún er að loka þar, en hún opnar nýja stofu á mánudaginn í Vínlandsleið 16.
Hér eru fréttir af mbl.is af prófkjörum framsóknarmanna í Mosfellsbæ og Kópavogi.