Föstudagur 26. febrúar
Í gær snjóaði talsvert á höfuðborgarsvæðinu.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.17-23 sótti ég fyrri hluta þings Sundssambands Íslands.
Þar var m.a. kynnt svokallað víðavatnssund, en þar er sund í sjó og vötnum.
Ef einhver finnur betra íslenskt orð en víðavatnssund er það vel þegið og skal bent á að á ensku heitir fyrirbærið að synda í Open water.
Ábendingar má senda á siv@althingi.is
Hér er frétt af vefnum dabladet.no um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fimmtudagur 25. febrúar
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.13:30 lá leiðin á starfsmenntadag hjá Samtökum ferðaþjónustunnar(SAF) á Grand hótelinu.
Kl.15:30 mættum við, sem vorum að útskrifast sem leiðsögumenn hjá EHÍ, í Þjóðminjasafnið þar sem við fengum yfirferð um safnið.
Kl.17 mælti ég fyrir frumvarpi til stjórnarskipunarlaga um að ráðherrar gegni ekki þingmennsku samhliða ráðherradómi.
Í miðri framsöguræðu fékk ég svo heiftarlegt hóstakast sökum kvefs, sem ég er búin að vera með, að ég þurfti að hverfa úr ræðustól Alþingis raddlaus og hóstandi.
Þeir sem hafa gaman af því að fylgjast með óförum annarra geta séð hóstakastið í lok ræðunnar ef stikan er dregin þangað.
Mjög góðar umræður spunnust um frumvarpið.
Hér er frétt á visir.is um málið og hér er önnur.
Seinni partinn skutlaði ég Hákoni upp í Versló þar sem hann var að fylgjast með ræðukeppni MR-inga og Verslinga.
Kl.20-22 var kynningarfundur frambjóðenda sem taka þátt í prókjöri framsóknarmanna í Mosfellsbæ á laugardaginn næsta.
Á leiðinni heim sótti ég Hákon í Versló.
Miðvikudagur 24. febrúar
Um morguninn fór ég í göngu um nesið.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins og síðan skriflegum fyrirspurnum.
Tók ég þátt í þeim eins og sjá má hér á mbl.is.
Kl.14:30-16:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.18:30 hittumst við Heiður, Sigga Björns og Biggi Bjarna til að skipuleggja vorhátíð 6-S bekkjar okkar úr MR.
Kl.21 mætti ég síðan á aðalfund Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi.
Þriðjudagur 23. febrúar
Kl.7:30 vorum við Ásmundur Einar Daðason í morgunþættir Rásar 2.
Hér er linkur á frétt ruv.is og linkur á frétt af eyjunni.is eftir þáttinn.
Hér má hlusta á þáttinn(dragið stikuna inn í tæplega miðju þáttarins).
Skrapp síðan í morgunkaffi á stofuna til pabba og svo í kaffi Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjuna.
Kl.10:15 hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem ég tók til máls vegna komandi þjóðaratkvæðageiðslu.
Hér er frétt af mbl.is eftir umræðuna.
Sjónvarpsfrétt rúv um sama mál.
Frétt af amx.is um sama mál.
Kl.14:30-16:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.17-19 var móttaka í ráðherrabústaðnum í tilefni af 20 ára afmæli umhverfisráðuneytisins.
Mánudagur 22. febrúar
Kl.11 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur í þinginu á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra og síðan utandagskrárumræðum um fjárhagsstöðu Álftaness, þar sem við Sigurður Ingi Jóhannsson tókum þátt fyrir hönd flokksins.
Í upphafi þingfundar var þingsályktunartillögu dreift ,sem ég er fyrsti flutningsmaður að, en hún fjallar um heimsóknir heim til þeirra sem eru 75 ára og eldri í forvarnarskyni að danskri fyrirmynd.
Kl.17 lá síðan leiðin í Nauthólsvík.
Kl.20-23 vorum við Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Eygló Harðardóttir í sænska sendiráðinu þar sem við hittum m.a. fulltrúa frá systurflokki okkar, Centerpartiet í Svíþjóð.
Fulltrúarnir voru Roger Tiefensee, þingmaður, þingflokksformaður og fulltrúi í fjárlaganefnd, Anders Flanking, ritari flokksins og bankaráðsmaður og Mila Eklund , alþjóðafulltrúi.
Sunnudagur 21. febrúar
Um miðjan daginn ókum við suður.
Kl.15 var opið hús á Hallveigarstöðum í tilefni konudagsins.
Boðið var upp á áhugaverða fyrirlestra, kökur og kaffi.
Laugardagur 20. febrúar
Prófkjör Bæjarmálafélags Seltjarnarness fór fram í dag og hlutu Árni Einarsson og Brynjúlfur Halldórsson bindandi kosningu í efstu sæti.
Í dag lá leiðin út á Snæfellsnes til að taka þátt í þorrablóti heimamanna á Lýsuhóli.
Helle og Guttorm, norskir vinir Ingunnar systur og Sigurgeirs komu með á blótið.
Helle er tannlæknir og var með Ingunni í náminu í Ósló, en Guttorm er framkvæmdastjóri norska karlalandsliðsins í fótbolta.
Fjölmenni mætti á staðinn úr Breiðuvík, Staðarsveitinni og víðar af nesinu.
Í anddyrinu var tekið á móti gestum að venju með hákarli og brennivíni.
Síðan var borðhald og óborganleg heimatilbúin skemmtiatriði.
Skemmtiatriðin tengdust mörg gleymsku kjörstjórnarmanna í alþingiskosningunum og nýlegu brúðkaupi á Indlandi sem hálf sveitin sótti.
Að lokum var dansinn stiginn fram á nótt.
Allir skemmtu sér vel, ekki síst norsku gestirnir sem voru að fara á sitt fyrsta þorrablót á ævinni.