Föstudagur 23. október
Sá í morgunsárið að visir.is hafði gert fyrirspurn minni um smádýr sem hafa áhrif á heilsu manna skil.
Kl.9 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem m.a yfirlýsingar félagsmálaráðherra voru ræddar.
Kl.10:30-11:30 er mín vakt á forsetastóli.
Vefur Morgunblaðsins mbl.is fjallaði einnig um fyrirspurn mína um skógarmítilinn og fleiri smádýr og fréttavefur ruv.is.
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.14:20 voru atkvæðagreiðslur á Alþingi.
Fimmtudagur 22. október
Kl.10:30 hófst þingfundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum.
Kl.11:30-12:30 var mín vakt á forsetastóli.
Í dag var dreift fyrirspurn minni um samninga vegna flutninga dæmdra manna til heimalands síns.
Miðvikudagur 21. október
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðu um störf þingsins.
Kl.14:30 hófst mín vakt á forsetastóli.
Í dag var tveimur fyrirspurnum frá mér svarað á Alþingi, annarsvegar um aðgerðir til að auka hlut kvenna í sveitastjórnum og hinsvegar um rannsóknir í ferðamálum hér innanlands.
Var ég ánægð með svarið við seinni spurningunni þar sem ráðherrann, Katrín Júlíusdóttir, virðist vera að setja í gang auknar rannsóknir í ferðamálum.
Hér er fyrri ræða mín.
Hér er fyrri ræða Katrínar.
Hér er seinni ræða mín.
Hér er seinni ræða Katrínar.
Í dag var einnig dreift fyrirspurn minni um smádýr á Íslandi sem eru að nema hér land og geta valdið , þ.e. dýr sem geta haft slæm áhrif á heilsu manna.
Hér er linkur á upplýsingar Náttúrufræðistofnunar Íslands um þessi nýju smádýr.
Kl.15:45 hófst skemmtilegt kaffisamsæti Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, í tilefni sextugsafmælis hennar.
Kl.17:30 er þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.20 hófst félagsfundur í Félagi framsóknarmanna í Garðabæ og Álftanesi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var gestur fundarins.
Þriðjudagur 20. október
Kl.12 hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis þar sem heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, fór yfir þau mál sem nefndin mun væntanlega fá til vinnslu í vetur.
Kl.12:45 tók ég á móti gesti í viðtal.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.14:30-16:00 var mín vakt á forsetastóli.
Síðan tók ég þátt í umræðum um þingsályktunartilögu okkar framsóknarmanna um 20% leiðréttingu lána.
Var ég í þinginu til kl.19.
Í dag var þessari fyrirspurn frá mér dreift á Alþingi.
Kl.20 hófst fundur í Kvenfélaginu Seltjörn á Seltjarnarnesi, en gestir fundarins voru konur úr Kvenfélagi Villingaholtshrepps.
Mánudagur 19. október
Skrapp í morgunkaffi á stofuna til pabba og vann síðan á skrifstofunni.
Kl.12 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Kl.13:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi.
Kl.16-17 var mín vakt í forsetastóli.
Kl. 17 skrapp ég í hressandi sjósund, en í dag var hiitastig sjávar 6 gráður.
Kl.18:30-19:00 sat ég aftur vakt á forsetastóli þar til þingfundi lauk.
Sunnudagur 18. október
Dagurinn fór í lestur gagna og tiltektir heima.
Seinni partinn kom Heiður í heimsókn og síðan skruppum við Hákon til Ingunnar systur og fjölskyldu í Hafnarfjörðinn.
Kl.20-22 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi þar sem við fengum kynningu á nýrri stöðu í icesave-málinu.
Ríkisstjórn Vg og Samfylkingar mun leggja fram nýtt frumvarp um það mál á morgun.
Laugardagur 17. október
Kl.11 hitti ég konur úr Slysavarnardeildinni Varðan á Seltjarnarnesi, en þær mættu í Gaujabúð með prjónana sína.
Þaðan lá leiðin á morgunkaffifund framsóknarmanna að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Eftir hádegi fór ég í ferð EHÍ um Reykjanes.
Að ferðinni lokinni leit ég við á kjördæmisþing framsóknarfélaganna í Reykjavík.
Þingið var haldið í verbúðinni í Sjóminjasafninu.