Föstudagur 19. mars
Um morguninn fór ég á reiðhjóli í Laugardalslaugina til að fylgjast með ÍM50, Íslandsmeistaramótinu í sundi í 50 metra laug.
Síðan hjólaði ég tilbaka út á Seltjarnarnes á fund í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Á fundinum var Garðar Ólafsson sæmdur Paul Harris-orðunni fyrir mikið framlag til Rótarýhreyfingarinnar um langt skeið.
Fundi heilbrigðisnefndar sem átti að vera eftir hádegi var aflýst þ.a. tíminn nýttist til að vinna í fyrirlestri sem ég flyt á morgun fyrir þingmenn úr Fremskrittspartiet í Noregi á Hótel Nordica um bankahrunið á Íslandi.
Kl.18 hittist saumaklúbburinn heima hjá Önnu Hrönn.
Fimmtudagur 18. mars
Kl.8:15 hófst málþing Samtaka atvinnurekenda(SA) á Hótel Nordica um hvernig má hagræða í heilbrigðisþjónustunni.
Síðan lá leiðin á góða ljósmyndasýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafninu í Kópavogi og svo niður í þing.
Kl.13 hélt Sundsamband Íslands(SSÍ) blaðamannafund í Laugardalslauginn í tilefni þess að í dag hefst ÍM50, þ.e. Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug.
Á fundinum var Íslandsmótið kynnt, skrifað undir afrekssamninga við Ragnheiði Ragnarsdóttur og Jakob Jóhann Sveinsson, Drangeyjarbikarinn afhentur og þær sundleiðir í sjó- og vötnum sem SSÍ viðurkennir kynntar.
Hér er yfirlit yfir þá sem hafa synt Drangeyjarsund frá upphafi, en sá fyrsti var Grettir Ásmundarson árið 1030.
Frétt af mbl.is um ÍM 50 og um þjálfararáðið.
Kl.18 var Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug sett í Laugardalslauginni.
Keppt var til kl.20 á þessum fyrsta keppnisdegi mótsins.
Eftir mótið skrapp ég í heimsókn til tengdó, Erlu og Húnboga.
Hér er sjónvarpsfrétt af ruv.is um ÍM 50 sem og sjónvarpsfrétt frá Stöð 2.
Miðvikudagur 17. mars
Kl.11 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.16:15 var ég í fréttaviðtali í færeyska útvarpinu(Rás 2) um tillögu sem ég er flutningsmaður að og fjallar um að gera landið að einu kjördæmi.
Færeyjar og Grænland búa bæði við það kerfi að þar er eitt kjördæmi.
Kl.17:40 var ég í beinnu símaviðtali á Bylgjunni um starfsemi lögreglunnar og þá sérstaklega þá mikilvægu starfsemi sem fer fram hjá Ríkislögreglustjóraembættinu.
Hér er upptaka af Reykjavík síðdegis á Bylgjunni(dragið stikuna þar til 1/3 er eftir af þættinum, þar er viðtalið).
Hjá þeirri stofnun eru almannavarnirnar, fjarskipamiðstöðin, alþjóðasamvinnan s.s. Interpol, Europol og Schengensamstarfið(Sirene), greiningadeildin sem rannsakar skipulagða glæpastarfsemi sem fer vaxandi, sérsveitin og rekstur alls lögreglubílaflota landsins svo eitthvað sé nefnt.
Lögreglan í landinu hefur staðið sig framúrskarandi vel í mörg ár og sýnir nýjasti þjóðarpúls Gallup að lögreglan nýtur mest trausts allra stofnana í landinu um þessar mundir.
Hér er pistill sem sýnir samanburð nokkurra valdra stofnana samfélagsins hvað traust varðar.
Fór síðan á þingflokksfund framsóknarmanna á Alþingi.
Í dag birtust nokkrar myndir mínar á vefnum sksiglo.is og komu bara vel út.
Þriðjudagur 16. mars
Kl.10-12 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.12:45 kynnti ég íslenskt heilbrigðiskerfi fyrir heilbrigðisstarfsmönnum frá Dagmargården, hjúkrunarheimilií Danmörku, í Hlaðbúð á Alþingi.
Kl.14 var utandagskrárumræða um löggæslumál sem ég tók þátt í.
Kl.16:00-17:30 var mín vakt á forsetastóli.
Í dag fór fram 2. umræða um frumvarp mitt og fleiri um veitinga- og skemmtistaði.
Hér er nefndarálit allsherjarnefndar, en þverpólitísk samstaða ríkir um málið.
Kl.20-22 var skemmtifundur Kvenfélags Seltjarnarness.
Mánudagur 15. mars
Kl.11 var fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var fundur þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Í dag var þingsályktunartillögu minni og fleiri um bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum(sem veldur aðallega eyrnabólgum) dreift á Alþingi
Kl.17 var sjósundið, en við bekkjarfélagar úr 6-S í MR, Heiður og Gummi mættum.
Hitastig sjávar var 3,3, gráður, logn og háflæði þ.a. hægt var að stökkva í sjóinn af klettunum.
Sunnudagur 14. mars
Um miðjan daginn tókum við til og gengum frá húsinu.
Héldum síðan heim á leið með viðkomu hjá Ellu og Magga á Hrauni í Sléttuhlíðinni.
Vorum komin heim kl.19.
Laugardagur 13. mars
Í dag snjóaði á Siglufirði.
Seinni partinn fór ég á skíðasvæðið í Skarðsdal.
Þar skemmti fólk sér hið besta á skíðum.
Á morgun á veðrið að verða enn betra samkvæmt spánni.
Síðan lá leiðin á sjúkrahúsið að heimsækja Kristbjörg Marteinsdóttur.
Um kvöldið fórum við í gómsæta mexícóska kjúklingasúpu til Brynhildar Baldursdóttur.