Föstudagur 1. janúar
Kl.10:30 mættum við Heiður í nýárssjósundið.
Margir mættu eins og við var að búast þótt hitastig sjávar væri lágt, eða mínus 1,7 gráða.
Hér er frétt Stöðvar 2 um nýárssjósundið og viðtal við mig.
Kl.13:30 var stofnufundur Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur.
Á fundinum kom fram að skráðar komur sjósundsgesta í gestabókina í Nauthólsvíkinni(ekki sumarkomur) árið 2007 voru 826, árið 2008 3.294 og á árinu sem var að líða 12.000.
Kl.15 var hin árlega nýársmóttaka hjá forseta Íslands á Bessastöðum.
Um kvöldið var nýársveisla Vaskra manna haldin í Vestubænum.
Fimmtudagur 31. desember
Dagurinn fór í að útbúa mat og fylgjast með kryddsíldinni og annála ársins í sjónvarpinu með öðru auganu.
Um kvöldið komu tengdó í mat, humar, rjúpu, önd og ís áður en við skutum upp flugeldum og fögnuðum áramótunum.
Einnig skrapp ég að hitta Björn Jónsson og fjölskyldu á Valhúsabrautinni til að þakka fyrir gamla árið.
Miðvikudagur 30. desember
Kl.7:30 vorum við Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður, á Rás 2 að ræða um stöðuna sem komin er upp á Alþingi vegna bréfs bresku lögmannsskrifstofunnar sem barst fjárlaganefnd í gær.
Skrapp svo í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Síðan átti að hefjast þingfundur en honum var ítrekað frestað fram eftir degi vegna nýrra upplýsinga sem voru að streyma til Alþingis frá bresku lögmannsskrifstofunni.
Að lokum hófst umræðna.
Stóð hún fram eftir kvöldi.
Síðla kvölds hófust atkvæðagreiðslur um icesave á Alþingi.
Hér er atkvæðaskýring mín.
Lauk þingfundi skömmu fyrir miðnætti.
Nokkur hópur mótmælenda var framan við Alþingi meðan á atkvæðagreiðslum stóð og þegar ég fór úr þinginu um kl.01.
Þriðjudagur 29. desember
Kl.9:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um þingmannanefnd sem fjalla mun um rannsóknarskýrsluna sem rannsóknarnefndin er að fara að skila af sér í lok janúar, byrjun febrúar.
Hér er frétt af visir.is um umræðuna.
Hér er frétt af ruv.is um umræðuna og frétt af mbl.is.
Hér er hljóðfrétt af ruv.is.
Allar breytingatillögur Hreyfingarinnar við þetta mál voru felldar í dag.
Hreyfingin gaf út yfirlýsingu vegna umræðunnar í dag.
Hér er pistill sem ég tók sama af því tilefni að Hreyfingin sneiðir að mér í henni.
Um miðjan daginn náði ég að fara með Hákon í Hafnarfjörðinn, en þar tóku hann og Sigurþór Jóhannesson á móti viðurkenningum fyrir að hafa náð Íslandsmeistaratiltlum á árinu í hagalbyssuskotfimi.
Um kvöldið fór ég aftur á Alþingi því þá kom hafí bréf frá breskri lögmannsstofu skilað sér til fjárlaganefndar og ástæða er til að ræða betur.
Húnbogi hélt veislu hér heima um kvöldið fyrir vini sína, en þeir útbjuggu margrétta veislumatseðil og skemmtu sér hið besta.
Mánudagur 28. desember
Kl.13-16 var málþing um náttúruminjasafn í tilefni 120 ára afmælis Hins íslenska náttúrufræðifélags haldið í Þjóðmenningarhúsinu.
Kl.17 var tími fyrir sjósund, en í dag var hitastig sjávar 0,3 gráður.
Kl.20:15-21:40 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Sunnudagur 27. desember
Kl.12 lá leiðin upp í Straumfjörðinn á Mýrunum til Línu og Valda.
Þar fór fram hið árlega nýárssjósund félagsskapar sem kallast Vinir Valda.
Lofthiti var 9-10 gráður frost og sjávarhiti því fremur lágur.
Að sjósundi loknu gæddum við okkur á allskyns krásum inni í hlýjunni hjá Línu og Valda.
Laugardagur 26. desember
Morguninn fór í að undirbúa jólaboðið.
Kl.16 hófst fjölskyldujólaboðið.
Buðum við upp á villibráð og annað tilheyrandi.
Tveir næturgestir urðu eftir, Simmi og Emil Örn.