Föstudagur 6. nóvember
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.11:30-12:15 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Kl.12:20 skrapp ég á fund í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.13:30-15:00 var seinni vakt mín á forsetastóli á Alþingi.
Fimmtudagur 5. nóvember
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Í dag var fjallað í Ríkisútvarpinu um fyrirspurnina síðan í gær á Alþingi.
Kl.13:30 fundaði ég með Samtökum ferðaþjónustunnar.
Kl.16-18 nýttist tíminn í EHÍ.
Kl.18:30-20:00 vorum við Hákon í 12 ára afmæli Simma í Hafnarfirði.
Um kvöldið leit ég við hjá tengdó.
Miðvikudagur 4. nóvember
Kl.9:15 skrapp ég í morgunkaffi á stofuna til pabba og leit svo við á flokksskrifstofunni.
Kl.10 var viðtal.
Kl.12:15 hófst fundur um nýbyggingu Landsspítala Háskólasjúkrahús(LSH) og undirskrift viljayfirlýsingar í kjölfarið.
Fundurinn var í hringsal LSH.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi þar sem m.a. dómsmálaráðherra svaraði fyrirspurn minni um gerð samninga um flutning dæmdra manna.
Hér er frétt um svarið af mbl.is.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.20-22 var opinn fundur með okkur Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, haldinn á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Þriðjudagur 3. nóvember
Kl.10 hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.14 var utandagskrárumræða að mínu frumkvæði um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni.
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, var til svara.
Kl.14:45-16:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.16:10-22:00 nýttist tíminn í EHí.
Mánudagur 2. nóvember
Kl.8:15 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.11 hófst fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.13:30-14:40 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hefst þingfundur á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.16:00-17:30 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Aftast á dagskránni var þingsályktunartillaga mín um landnýtingaráætlun vegna ferðamennsku á miðhálendinu.
Þeir sem tóku þátt í umræðunni voru jákvæðir gagnvart tillögunni og vonuðust til þess að hún yrði samþykkt sem fyrst.
Kl.19:30-21:00 komu læknanemar (medical students) frá nokkrum löndum í heimsókn á Alþingi.
Þau eru að hér til að taka þátt í samnorræni ráðstefnun um aukið samstarf milli læknanema.
Sunnudagur 1. nóvember
Dagurinn nýttist að hluta í að lesa gögn og undirbúa þingvikuna sem er framundan.
Um miðjan daginn fór ég í góða göngu um Seltjarnarnesið í fallega veðrinu.
Laugardagur 30. október
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Um miðjan daginn þvoði ég græna bílinn og tók til í húsinu.
Kvöldið nýttist í bóklestur.