Föstudagur 27. nóvember
Kl.9-13 er fundur í stjórn Norræna menningarsjóðsins.
Að honum loknum lá leiðin heim.
Var komin heim á nesið laust eftir miðnætti.
Fimmtudagur 26. nóvember
Kl.11:00-16:45 er fundur í stjórn Norræna menningarsjóðsins(NKF).
Kl.18:15 fáum við kynningu á verkefninu Rethink á Ríkislistasafninu.
Miðvikudagur 25. nóvember
Búið er að dreifa fyrirspurnum mínum um umhverfismerkingar á fisk til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og nokkrar um fjárhagsstöðu sveitarfélaganna til Kristjáns Möller, samgönguráðherra(fer með sveitarstjórnarmál).
Fyrirspurn 1 um fjármál sveitarfélaga og fyrirspurn 2 um fjármál sveitarfélaga.
Fyrirspurn 3 um fjármál sveitarfélaga og fyrirspurn 4 um fjármál sveitarfélaga.
Í dag lá leiðin til Kaupmannahafnar.
Á morgun og hinn er fundur í stjórn Norræna menningarsjóðsins.
Þriðjudagur 24. nóvember
Kl.8:30 hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.12:30 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.14 var síðan utandagskrárumræða að mínu frumkvæði um fjárhagsábyrgð heilbrigðisráðuneytis og félgs- og tryggingamálaráðuneytis vegna hjúkrunarheimila.
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra var til andsvara.
Í umræðunni kom fram að ráðherrar þessara málaflokka eru ósammála og hefur Álfheiður efasemdir með réttu um að rétt sé að færa fjárhagsábyrgð á hjúkrunarheimilum frá heilbrigðisráðuneytinu.
Kl.15 var fundur nokkura þingmanna vegna umhverfismerkinga á fisk.
Kl.16-18 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.18-20 nýttist tíminn í EHÍ.
Mánudagur 23. nóvember
Kl.10 hófst fundur þingmanna Suðvesturkjördæmis með bæjarfulltrúum Álftaness.
Kl.13:30 var sambærilegur fundur með bæjarstjórn Garðabæjar.
Kl.15 var sambærilegur fundur með bæjarstjórn Mosfellsbæjar.
Á þessum fundum var rætt um fjármál sveitarfélaganna, skólamál, vegaumbætur, hjúkrunarheimili og fleira.
Kl.17 var tími í sjósund, en í dag var hitastig sjávar 4,4 gráður.
Um kvöldið komu Tyrfingur, Íris og Gunnar Þór til mín að vinna í verkefni.
Sunnudagur 22. nóvember
Um morguninn litum við inn á sögusöfn um fortíð Albana á leiðinni út á flugvöll.
Síðan lá leiðin heim til Íslands.
Var komin heim skömmu eftir miðnætti.
Laugardagur 21. nóvember
Um morguninn fórum við í gegnum Kruja þar sem við fengum kynningu á Skanderbegsafninu, en Skanderbeg er þjóðhetja Albana.h
Þaðan lá leiðin til Durres.
Þar funduðum við með þingmönnum kjördæmisins þeim Albana Vokshi og Gazmend Oketa, ásamt þingmanni úr kjördæmi sunnar í landinu, Igli Cara.
Um kvöldið hittum við ræðismann Íslands í Albaníu, Isuf Berberi.