Föstudagur 9. júlí
Kl.11 var athöfn á Háskólatorginu þar sem kynnt var verðlaunatillaga að nýjum Landspítala-háskólasjúkrahúsi.
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Seinni partinn lá leiðin norður á Siglufjörð.
Fimmtudagur 8. júlí
Kl.11 fórum við Heiður, Ragga, Siv og Ingrid í hressandi sjósund, en sjávarhiti í dag var 12,8 gráður.
Um kvöldið grilluðum við silung.
Miðvikudagur 7. júlí
Fyrri partur dags fór í að ganga frá eftir vesturferðina.
Kl.17 gengu Heiður Björnsdóttir og Hákon Óskarsson í hjónaband í Dómkirkjunni.
Sr. Þórir Stephensen gaf þau saman, Ragna Árnadóttir og Ragnheiður Sigurðardóttir voru svaramenn og ég sá um ljósmyndatökur.
Að athöfn lokinni fengum við okkur kampavín áður en leiðin lá í glæsilegan kvöldverð á Hótel Sögu.
Þessi fallegi og eftirminnilegi dagur endaði síðan heima hjá Heiði og Hákoni.
Þriðjudaginn 6. júlí
Um morguninn litu tengdó, Húnbogi og Erla, við hjá okkur.
Dagurinn fór í að klára að ræsta veiðihúsið og merkja restina af hyljunum.
Um miðnætti vorum við búin.
Vorum komin heim um kl.3:30 um nóttina.
Mánudagur 5. júlí
Um miðjan daginn ræstum við veiðihúsið í Gufudal fyrir veiðivertíðina sem hefst í vikunni.
Einnig merktum við hyljina fyrir ofan vatn.
Um kvöldið komu bændur í dalnum í mat til okkar.
Voru sagðar skemmtisögur fram eftir kvöldi og stórir og smáir skemmtu sér vel.
Sunnudagur 4. júlí
Í dag skruppum við mamma í leiðangur í Mosfellsbæ.
Fórum líka í kaffi til Ingunnar í Hafnarfjörðinn.
Um kvöldið nýttist tíminn í tölvunni, við lestur og akstur vestur í Gufudalinn.
Laugardagur 3. júlí
Dagurinn nýttist aðallega í að taka til í húsinu, dytta að garðinum og versla í BYKO.
Um kvöldið skrapp ég með Hákoni, Óla og Magga á Hróa hött.