Föstudagur 2. júlí
Kl.12:15-13:30 var stjórnaskiptafundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.16:10-16:30 vorum við Eyþór Arnalds í dægurmálaútvarpinu á Rás 2 hjá Hallgrími Thorsteinssyni og Guðfinni Sigurvinssyni.
Ræddum við um dóm hæstaréttar í lánamálum, aðildarumsókn ESB og fleira.
Um kvöldið fór ég með Heiði, Hákoni og fleirum á frábæra funktónleika á Nasa, en sonur þeirra, Kjartan Hákonarson, var að spila þar með m.a. Jagúar og Hjálmum.
Hér er slóðin á dagskrána.
Fimmtudagur 1. júlí
Kl.9-15 funduðum við í ráðhúsinu í Bergen og heimsóttum Lövåsen undervisningssykehjem(kennsluhjúkrunarheimili).
Í Lövenåsen skoðuðum við sérstaklega þjónustu fyrir aldraða með heilabilun(demens).
Fyrir utan hjúkrunarheimilið er sérstakur skyngarður(sansehage) þar sem aldraðir geta komist í snertingu við gróður.
Kl.18:10 var flug til Köben og þaðan heim kl.22:30.
Miðvikudagur 30. júní
Í dag skoðuðum við Bergen áður en við hittum fulltrúa bæjaryfirvalda og forstöðumenn sem stýra velferðarþjónustu fyrir eldri borgara í Bergen.
Bergen er næst stærsta borg Noregs á eftir Ósló og er með skemmtileg þróunarverkefni í þjónustu fyrir aldraða.
Í dag birtist þessi grein eftir mig, um ræðutíma á Alþingi, í Fréttablaðinu.
Þriðjudagur 29. júní
Í dag var fundur velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Veiti ég nefndinni forstöðu, en auk þess er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður, fulltrúi Íslands í nefndinni.
Meginverkefni nefndarinnar í ár er að vinna tillögur fyrir Norðurlandaráð um hvernig bæta megi lífsgæði eldri borgara á Norðurlöndunum.
Ræddum við slíkar tillögur á fundinum.
Mánudagur 28. júní
Kl.9-13 heimsótti velferðarnefnd Norðurlandaráðs Öya helsehus í Þrándheimi.
Kl.13:50-16:00 heimsóttum við síðan Tempe helse og velferdssenter.
Um kvöldið bauð bæjarstjórnin velferðarnefndinni til kvöldverðar í Leangen gård.
Sunnudagur 27. júní
Kl.7:30 var flug til Oslóar og þaðan áfram til Þrándheims.
Næstu daga verð ég á vesturströnd Noregs að stýra fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Um kvöldið fengum við okkur að borða og gengum um Þrándheim.
Laugardagur 26. júní
Kl.15 fór ég á AMÍ mótið í sundi í Ásvallalauginni í Hafnarfirði.
Góð mæting var á mótið og skemmtu keppendur og áhorfendur sér bið besta.
Aðstaðan á Ásvöllum er mjög góð fyrir sundkeppni af þessu tagi.
Um kvöldið skrapp ég á Alþingi að sækja gögn.