Föstudagur 8. janúar
Kl.10 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.10:30 hófst þingfundur þar sem fjallað var um frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna icesave-laganna þar sem forseti Íslands synjaði þeim staðfestingar.
Kl.16-18 var móttaka í ráðherrabústaðnum í tilefni af 40 ára afmæli heilbrigðisráðuneytisins.
Um kvöldið hélt þingfundur áfram þar til greidd voru atkvæði um og samþykkt lög um þjóðaratkvæðagreiðslu um icesave.
Finna má aukinn stuðning við stöðu Íslands í fjölmiðlum.
Hér er t.d. grein á einum netmiðlinum(sjá sérlega seinni hlutann) og hér er linkur á yfirlýsingar norrænna þingmanna.
Hér er hluti ræðu norska þingmannsins Per Olafs Lundteigen(Sp) í umræðum á norska Stórþinginu um norrænt samstarf, sem fram fór í gær 7. janúar, og hluti ræðu Knut Arild Hareide (KrF).
Hér eru síðan svör utanríkisráðherra Noregs Jonas Gahr Støre.
Viðtal Evu Joly frá því í gær á rúv.
Linkur á viðtal við Dr. Michael Waibel, sérfræðing í alþjóðalögum við háskólann í Cambridge á Englandi.
Fimmtudagur 7. janúar
Nýtti tímann í dag á skrifstofunni að undirbúa fyrirlestur.
Hér er linkur á röksemdafærslu forseta Íslands bæði 2004 og 2010 þegar hann í fyrra tilvikinu hafnar staðfestingu laga um fjölmiðla og í því seinna laga um ríkisábyrgð vegna icesave.
Seinni partinn fór ég í vinnuna til Ingunnar systur.
Um kvöldið elduðum við Hákon saman pizzu fyrir fjölskylduna.
Miðvikudagur 6. janúar
Hér er linkur á viðtal við mig í Dagbladet í Noregi þar sem ég er að reyna að koma réttum skilaboðum á framfæri um stöðuna á Íslandi.
Hér er sama viðtal án mynda.
Í gær var ég líka í símasambandi við stjórnmálamenn úr systurflokkum okkar erlendis.
Kl.8:30 vorum við Árni Þór Sigurðsson og Þór Saari, alþingismenn, í beinni útsendingu á Rás 2 vegna synjunar forseta Íslands á staðfestingu icesave-laganna í gær.
Hér má hlusta á viðtalið.
Kl.12:15 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Síðan skrapp ég niður á Alþingi að hitta fólk.
Seinni partinn heimsótti ég Björn Jónsson á Landakoti.
Sá að í gær voru settar inn upplýsingar um skógarmítil inn á síðu landlæknis.
Ég var nýlega með ábendingu í þinginu til Álfheiðar Ingadóttur, heilbrigðisráðherra, um að slíkt væri æskilegt.
Fagna ég því að ráðherra hefur brugðist vel við ábendingunni.
Þessi skemmtifrétt birtist á dv.is í dag.
Þriðjudagur 5. janúar
Kl.11 kom Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, með yfirlýsingu um að ann myndi ekki staðfesta nýju icesave-lögin.
Dagurinn fór meira og minna í að fylgjast með í fréttamiðlum.
Hér eru rök Eiríks Tómassonar.
Náði líka að ræða við tvo erlenda stjórnmálamenn um stöðuna hér og leiðrétta að Ísland vilji ekki borga krónu, eins og skilja mátti í fjölmiðlum erlendis í dag.
Hér er yfirlýsing ríkisstjórnarinnar sem fór til erlendra miðla í dag(declaration by the Icelandic goverment, english).
Yfirlýsing forsetans á ensku(declaration by the president of Iceland, english).
Kl.20:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi um stöðu mála.
Mánudagur 4. janúar
Í dag lá leiðin í verslanir og í klippingu.
Kl.15 hitti ég Fiann Paul, ljósmyndara og sýndi honum Alþingi.
Hann er nú með ljósmyndasýningu í Norræna húsinu.
Kl.17 var sjósund.
Í dag var hitastig sjávar mínus 1,7 gráða, lofthiti mínus 6 gráður og kæling mínus 3 gráður.
Sunnudagur 3. janúar
Í dag fórum við niður í Reykjavíkurhöfn til að fá kynningu á byggingu Hörpu, Tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar í Reykjavík.
Tryggvi Jónsson, verkfræðingur á staðnum, kynnti verkefnið fyrir okkur.
Húsið verður örugglega hið glæsilegasta.
Hér eru myndir frá ferðinni:
Myndaröð 1.
Myndaröð 2.
Myndaröð 3, og
myndaröð 4.
Seinni part dags skrapp ég til mömmu að horfa á myndina "The Queen".
Um kvöldið horfði fjölskyldan á myndina "Guð blessi Ísland" í sjónvarpinu.
Laugardagur 2. janúar
Í dag vorum við heima í rólegheitunum.
Hluti dagsins fór í að afrita myndir af tölvunni yfir á flakkar þar sem áramót eru nýgengin.
Um kvöldið borðuðum við veislumat og horfðum á mynd í sjónvarpinu.