Föstudagur 11. desember
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Vann í gögnum hluta dagsins.
Skrapp líka í te til mömmu.
Kl.17 komu vinkonur mínar, Heiður, Hróðný og Anna Hrönn í heimsókn.
Um kvöldið skruppum við Heiður í heimsókn til pabba hennar.
Fimmtudagur 10. desember
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar í Firðinum.
Vann síðan í gögnum.
Kl.20-22 var jólafundur Kvenréttindafélags Íslands haldinn að Hallveigarstöðum.
Á fundinum var m.a. lesið upp úr jólabókum.
Miðvikudagur 9. desember
Fyrir hádegi var myndataka.
Kl.12 fóru starfsmenn Alþingis og alþingismenn í hefðbundinn jólamat á Hótel Borg, hangikjöt og uppstúf.
Var síðan að vinna á skrifstofunni til kl.19.
Í dag sendi þingflokksformaður framsóknaramann út yfirlýsingu að gefnu tilefni.
Yfirlýsingin er um að ég hafi verið pöruð út vegna fjarveru Helga Hjörvar á Alþingi í gær, en hann var þá í lögmætum erindagjörðum sem þingmaður erlendis.
Þriðjudagur 8. desember
Fór í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.10:00-11:30 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.20-22 var fundur með stjórn kjördæmissambandsins, formönnum framsóknarfélaga og miðstjórnarmönnum í SV-kjördæmi haldinn á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Gestir fundarins voru Óskar Bergsson, formaður sveitastjórnarráðsins og Einar Gunnar Einarsson, starfsmaður flokksskrifstofunnar.
Ræddum við væntanlegar sveitastjórnarkosningar.
Mánudagur 7. desember
Kl.11:30 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.14-15 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Kl.17-19 var tími í sjósund, en í dag var sjávarhiti 1,7 gráða og gaman að fara í spegilsléttan sjóinn í myrkrinu.
Um kvöldið tók ég þátt í umræðum á Alþingi um þingmannanefndina sem mun vinna úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar vegna bankahrunsins.
Kl.19:30-20:30 var seinni vakt mín á forsetastóli á Alþingi.
Sunnudagur 6. desember
Um miðjan daginn héldum við suður á bóginn.
Á leiðinni stoppuðum við til að fara í góðan göngutúr í góða veðrinu.
Vorum við komin í bæinn um kl.20.
Laugardagur 5. desember
Um miðjan daginn fór ég upp á heilbrigðisstofnun Siglufjarðar til að heimsækja Kristbjörgu Marteinsdóttur, ekkju Jóhannesar Hjálmarssonar, ömmubróður míns.
Um kvöldið buðum við Ragga Ragg til okkar í nautasteik.
Að venju fylgdumst við síðan með Spaugsstofunni og Útsvari.