Föstudagur 13. nóvember
Um morguninn skrapp ég á ráðstefnu um kynjaða fjárlagagerð,
Kl.10:30 hófst þingfundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Spurði ég Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um mögulegt samstarf og samráð okkar og Færeyinga vegna ESB mála.
Í hádegishléi var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.13:40 hófst mín vakt á forsetastóli, en hún var stutt þar sem ég mælti stuttu síðar fyrir frumvarpi mínu og meðflutningsmanna um brottfall undanþáguákvæðis um nektardans.
Um kl.15 lauk þingfundi.
Kl.17:30 sýndi ég þjóðlagahljómsveitinni Skra frá Álandseyjum Alþingi og bauð þeim síðan heim í svartfugl áður en þeir spiluðu á English pub.
Hér er heimasíða þeirra www.skra.net.
Um kvöldið skrapp ég í pizzu til Heiðar áður en við Hildur systir fórum á tónleika á English pub(Skra) og í Rósenbergkjallaranum(Varsjárbandalagið).
Fimmtudagur 12. nóvember
Kl.10.30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Kl.12:00-13:30 var ég á fróðlegum fyrirlestri í Norræna húsinu um stöðu Færeyja.
Þar er búið að setja niður nefnd sem mun skoða framtíðartengsl Færeyja við ESB.
Að fundi loknum fór ég aftur í þingið og svo í heimsókn til vinar míns á Landsspítalanum-háskólasjúkrahúsi.
Næst lá leiðinn í Kringluna að kaupa lopagarn og prjóna og síðan á skrifstofuna mína og í þingið.
Var komin heim um kl.18.
Í dag barst svar við fyrirspurn minni um smádýr sem hér eru að taka bólfestu, líklega vegna loftslagsbreytinga.
Hér er frétt af vefnum mbl.is vegna svarsins.
Um kvöldið elduðum við svartfugl.
Miðvikudagur 11. nóvember
Kl.13:30 hófst þingfundur á umræðum um störf þingsins og síðan fyrirspurnum.
Ég átti fyrstu fyrirspurnina, en hún var um hvort mögulegt væri að koma Náttúruminjasafni Íslands fyrir í Þjóðmenningarhúsinu, en safnið er eitt þriggja höfuðsafna Íslands.
Hin eru Þjóðminjasafnið og Listasafn Íslands.
Hér er umræðan.
kl.14:30-16:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Að honum loknum skrapp ég upp á Landsspítala-háskólasjúkrahús í heimsókn.
Þriðjudagur 10. nóvember
Kl.9 var morgunkaffi Jöklarannsóknafélags Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Kl.10-12 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.12:45 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl .13:30 mætti ég í Fjölbrautarskólann í Ármúla að kynna Framsóknarflokkinn í stjórnmálafræðitíma.
Fór síðan aftur í þingið.
Í dag fékk ég skriflegt svar umhverfisráðherra við fyrirspurn minni um kortlagningu slóða á hálendinu.
Seinni partinn mælti ég fyrir máli á Alþingi, sem ég flyt ásamt fleirum, um hagsmuni Íslands í loftslagsmálum.
Var ég komin heim úr þinginu um kl.20.
Mánudagur 9. nóvember
Kl.8:30-10:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.12 var rótarýfundur á Hótel Borg.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.17 var sjósund, en sjávarhiti var 6,8 gráður í dag.
Kl.19-21 var framhaldsfundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Síðan skrapp ég á fund Slysavarnardeildar kvenna á Seltjarnarnesi.
Sunnudagur 8. nóvember
Dagurinn fór í að þrífa húsið og lesa gögn.
Seinni partinn fórum við Hildur systir í gönguferð í rigningunni.
Um kvöldið horfði ég m.a. á norskan framhaldsmyndaþátt í sjónvarpinu.
Laugardagur 7. nóvember
Kl.9 lagði hópur nema úr EHÍ upp í skemmtilega ferð um Gullna hringinn.
Um morguninn stoppuðum við og skoðuðum fossinn Faxa í Tungufljóti.
Í hádeginu vorum við á Geysi í blíðskaparveðri.
Rjúkandi heit kjötsúpa beið okkar á Gullfossi.
Síðan ókum við Lyngdalsheiðina og áðum á Hakinu á Þingvöllum.
Vorum við komin í bæinn aftur um kl.16.
Um kvöldið passaði ég Lenu Maríu og Emil Örn.