Föstudagur 11. júní
Kl.11 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Seinni partinn fórum við Heiður, Anna Hrönn og Hróðný austur í Landbrotið.
Á leiðinni ókum við í gegnum öskufok frá Eyjafjallajökli.
Um kvöldið fórum við í góða göngu.
Fimmtudagur 10. júní
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Á fundinum voru greidd atkvæði um mörg mál, þ.á.m. var samþykkt þingsályktunartillaga mín um að hefja bólusetningar gegn pneumókokkasýkingum barna, en þær valda m.a. eyrnabólgum.
Hér er málið sem var samþykkt.
Hér er nefndarálit heilbrigðisnefndar Alþingis.
Það er ekki oft sem þingmannamál eru samþykkt, en í dag voru 2 slík mál samþykkt að auki, mál Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur um bólusetningar gegn HPV smiti og leghálskrabbameini og mál Skúla Helgasonar um eflingu græna hagkerfisins.
Kl.14:00-16:30 var fyrri vakt mín á forsetastóli á Alþingi.
Kl.18-19 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Miðvikudagur 9. júní
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.11:30-13:00 var fyrri vakt mín á forsetastóli.
Kl.16-18 var fundur þingflokks framsóknarmanna.
Kl.20:30 hefst seinni vakt mín á forsetastóli.
Þriðjudagur 8. júní
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.13:30-14:00 var fyrri vakt mín á forsetastóli, en sú seinni kl.18:00-19:00.
Kl.22:30 komst ég að í umræðum um stjórnlagaþing sem er nú til annarar umræðu á Alþingi.
Mánudagur 7. júní
Kl.9:30 hófst Vestnorræna kvennaráðstefnan í Þjóðmenningarhúsinu.
Kl.13 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.14:45-15.45 var ég í pallborði á Vestnorrænu kvennaráðstefnunni fyrir hönd Framsóknarflokksins.
Kl.16:30-18:00 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Um kvöldið fórum við Heiður, vinkona, í góða göngu um Grafarvoginn.
Sunnudagur 6. júní
Í dag nýttist tíminn í að vinna í gögnum fyrir komandi vinnuviku, háþrýstiþvo svalirnar og elda hluta fisksins sem við veiddum í gær.
Kl.19 hófst móttaka í Þjóðmenningarhúsinu í boði forseta Alþingis í tilefni Vestnorrænnar kvennaráðstefnu sem hefst á morgun.
Laugardagur 5. júní
Kl.10 hófst fundur í stjórn Sundsambands Íslands(SSÍ) í Laugardalnum.
Um miðjan daginn fórum við fjölskyldan á veiðar.
Dagurinn var góður og vorum við ekki komin heim fyrr en kl.1:30 um nóttina.