Föstudagur 16. júlí
Kl.14:30 lagði fríður hópur vaskra göngumanna af stað á vegum Ferðafélags Siglufjarðar til Ólafsfjarðar til að hefja helgargöngu sem bar nafnið -Friðirnir þrír-, milli Ólafsfjarðar til Siglufjarðar um Héðinsfjörð.
Kl.16 var gengið af stað í blíðskaparveðri frá Kleifum og inn Rauðskarðsdal.
Þaðan var gengið upp Rauðskörð, en þau eru nokkuð brött.
Úr skarðinu var gengið niður Víkurdal og í Héðinsfjörð.
Kl.22 vorum við komin á Vatnsenda þar sem við tjölduðum.
Að því verki loknu var grillað og sungið.
Gangan gekk mjög vel og allir komu heilir í næturstað.
Fimmtudagur 15. júlí
Morguninn fór í tölvuvinnu.
Seinni partur dags fór í að taka til fyrir norðanferð.
Um kvöldið lá leiðin norður.
Miðvikudagur 14. júlí
Kl.10 fór ég í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.15 fórum við svo saman í útför Kára Halldórssonar og var hún gerð frá Seltjarnarneskirkju.
Kl.17 hófst Íslandsmótið í sjósundi í Nauthólsvík, en ég aðstoðaði við það mótshald fyrir hönd Sundsambands Íslands.
Um 60 keppendur mættu til leiks .
Sundleiðir voru 1 eða 3 kílómetra og var synt í neophrengöllum eða án þeirra(sem er erfiðara).
Veðrið var mjög gott til sjósunds, logn og bjart yfir.
Í lok móts fór fram verðlaunafhending.
Var það mat manna að Íslandsmótið í sjósundi, sem nú var haldið í annað sinn, hafi farið vel fram og að keppendur og áhorfendur hafi allir skemmt sér vel.
Hér er tengill á tímunum sem keppendur syntu á.
Um kvöldið klipptum við Hákon greinar í garðinum.
Þriðjudagur 13. júlí
Eftir hádegi tók ég viðtal á Alþingi.
Fór síðan í útréttingar.
Um kvöldið tókum við Hákon til í herberginu hans með aðstoð Sindra.
Mánudagur 12. júlí
Fyrri hluti dags fór í tiltektir.
Seinni partur dags nýttist í stórskemmtilegar makrílveiðar á Seltjarnarnesi.
Nokkur hópur fólks sem býr í grennd við höfnina lenti þar í rífandi veiði.
Var á í hverju kasti þannig að stórir og smáir máttu hafa sig alla við í veiðinni.
Var gert að hluta aflans á staðnum og fengu allir að smakka gott makrílsushi.
Sunnudagur 11. júlí
Um morguninn gengum við mamma frá húsinu, en hún er búin að vera eins og hvítur stormsveipur í að laga til inni og úti í garði.
Um hádegi lögðum við af stað í bæinn.
Stoppuðum við til að fá okkur snarl á veitingastaðnum -Við árbakkann- á Blönduósi.
Frábær staður sem hægt er að mæla með.
Kl.17 hittumst við systkinin í mat hjá Ingunni í Hafnarfirði ásamt hluta barna og maka.
Laugardagur 10. júlí
Kl.10 fórum við Sigurður Steingrímsson af stað í skemmtilega fjallgöngu.
Gengum við svokallaða Botnaleið frá Siglufirði til Fljóta.
Gengið er upp úr Hólsdal meðfram Blekkilsá.
Á hábungunni sést bæði vel til Siglufjarðar og niður í Fljótin.
Vorum við heppin og fengum fínt gönguveður.
Gangan tók um 5 tíma og sótti mamma okkur inn í Fljótin.
Um kvöldið lá leiðin á Allan þar sem Varsjárbandalagið spilaði.
Þar var líka sýndur var afrakstur námskeiðsins í Afríkudönsum sem kennt var á Þjóðlagahátíðinni.
Hér er linkur af frétt sem sksiglo.is setti inn af göngunni og Afríkudösunum.