Föstudagur 16. apríl
Kl.12 var fundu þingmanna þriggja þingflokka ásamt nokkrum prestum.
Kl.13:30-15:00 var mín vakt á forsetastóli.
Fimmtudagur 15. apríl
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Eftir hádegi hélt ég ræðu um skýrslu rannsóknarnefndarinnar vegna bankahrunsins.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.17:30 tók ég á móti félagi lýðheilsunema og sýndi þeim Alþingi.
Um kvöldið var fundur vegna sveitastjórnarmála.
Miðvikudagur 14. apríl
Kl.8-9 var fundur valnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.9-12 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.13:00-14:30 heimsótti nefndin Minnismiðstöðina(Hukommelsesklinikken) á Ullevåll sykehus, en hún sérhæfir sig í greiningu og meðferð heilabilaðra(demens).
Kl.17:30 var flug frá Osló til Köben og þaðan heim til Íslands.
Á leiðinni sást vel til gosstróksins frá eldgosinu.
Líklega lokast flugsvæðið í Noregi núna vegna eldgossins undir Eyjafjallajökli.
Þriðjudagur 13. apríl
Kl.9-13 var fundur flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.14:30 hófst fundur Norðurlandaráðs með fulltrúum frá þjóðþingum Eystrasaltsríkjanna.
Í dag var dreift á Alþingi svari við fyrirspurn minni til ráðherra ferðamála um starfsréttindi leiðsögumanna.
Seinni partinn hitti ég Kirsti og Daníelu.
Mánudagur 12. apríl
Kl.7:50 var flug til Oslóar.
Þar mun ég stýra fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.14-19 var fundur miðjumanna í Norðurlandaráði um norrænt og evrópskt samstarf haldinn í húsakynnum norska Stórþingsins.
Um kvöldið las ég hluta af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á netinu.
Sunnudagur 11. apríl
Kl.13:30 hófst guðþjónusta í Neskirkju þar sem Leifur Þorbjarnarson, systursonur minn, var fermdur ásamt vinum sínum.
Kl.16 hélt Leifur og fjölskylda stórglæsilega fermingarveislu á Hótel Sögu þar sem vinir og vandamenn samglöddust.
Um kvöldið vann ég í tölvunni og pakkaði í tösku vegna fundar velferðarnefndar Norðurlandaráðs sem haldin er í Osló.
Laugardagur 10. apríl
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna í félagsaðstöðu flokksins að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Kl.12:30 fundaði ég vegna sveitastjórnarmála.
Skrapp síðan í IKEA og Rúmfatalagerinn með Hákoni og svo til Hildar systur til að sjá fermingarkökuna sem hún bakaði.
Kl.17:30 var móttaka í skipinu Eldingu í tilefni þess að Gunnar Þór Gunnarsson og Tyrfingur Tyrfingsson voru að stofna nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á hópferðir um borgina á rafhjólum með leiðsögn.
Heimasíða fyrirtækisins er www.seasontours.is.
Kl.20 hélt Erna Guðmundsdóttir, nágrannakona mín, upp á fertugsafmælið sitt.
Veislan var stórskemmtileg, drepfyndin skemmtiatriði og ræður og allir í stuði.