Föstudagur 19. febrúar
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem við m.a. tókum inn tvo nýja félaga, þau Sjöfn Þórðardóttur og Ólaf Inga Ólafsson.
Um miðjann daginn vann ég í pappírum og tók til í húsinu.
Kl.18:45 fór ég að kjósa utankjörstaða í prófkjöri Bæjarmálafélags Seltjarnarness þar sem óljóst er hvenær ég fer út á land á morgun.
Prófkjörið er opið prófkjör þ.a. allir mega koma og þurfa ekki að vera flokks- né félagsbundir.
Prófkjörið fer fram á morgun kl.10-16 í Valhúsaskóla og mega allir sem hafa kosningarétt í vor(þá orðnir 18 ára) og eiga lögheimili á Seltjarnarnesi taka þátt í því.
Hér er linkur á Neslistann sem Bæjarmálafélag Seltjarnarness býður fram.
Í dag birtist greinin -Det flotte færöyiske flagget- eftir mig í dagblaðinu Sosialurinn í Færeyjum.
Hér er linkur á greinina í blaðinu(klikkið á greinina ef þarf að stækka letrið).
Fimmtudagur 18. febrúar
Kl.8:30 hófst fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.10 var fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs ásamt samstarfsráðherrum Norðurlandanna.
Kl.11 skoðuðum við upplýsingaskrifstofu Norðurlandaráðs í Vilníus.
Síðan borðuðum við hádegismat þar sem ég hitti m.a. danska sendiherrann, Laurids Mikaelsen.
Eftir hádegi heimsóttum við mannréttindaháskólann í Vilníus, European Humanities University(EHU), en háskólinn var stofnaður í Minsk í Hvíta-Rússlandi árið 1992.
Árið 2004 lokaði einræðisstjórnin skólanum og var hann þá fluttur til Vilníus.
Hann var því gerður útlægur úr Hvíta-Rússlandi( Belarusian exile university).
Skólinn er m.a. styrktur af Norðurlandaráði, en 95% nemenda hans eru frá Hvíta-Rússlandi.
Stefnt er að því að flytja skólann tilbaka til Minsk ef stjórnmálaástandið þar skánar.
Hér er linkur á ensku útgáfuna af heimasíðu skólans og hér á frétt af norrænum stuðningi við skólann.
Kl.17:50 var flut til Kaupmannahafnar og þaðan heim.
Var komin út á nes um miðnætti.
Miðvikudagur 17. febrúar
Kl.11:45 var flug til Vilníus í Litháen en þar er fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs ásamt Eystrasaltsráðinu.
Kl.16:00-18:30 var fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs ásamt Eystrasaltsráðinu í þinghúsinu í Vilníus.
Fundurinn var haldinn í stjórnarskrársalnum svokallaða þar sem Litháar skrifuðu undir stjórnarskár sína árið 1992.
Í lok fundar var skrifað undir samstarfssamning Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins.
Kl.19:30 var kvöldmatur í gömlu ráðhúsbyggingunni.
Þriðjudagur 16. febrúar
Kl.10 var fundur heilbrigðisnefndar Alþingis þar sem við fórum yfir sparnaðartillögur í heilbrigðisþjónustunni.
Kl.14:15 var flug til Kaupmannahafnar, en þaðan liggur leiðin til Vilníus á fund forsætisnefndar Norðurlandaráðs ásamt Eystrasaltsráðinu.
Í dag birtist viðtal við mig á Pressunni.is í tilefni útskriftarinnar úr leiðsögunáminu.
Hér er pistill vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB þegar þar að kemur.
Mánudagur 15. febrúar
Kl.10-17 var fundur þingflokks framsóknarmanna haldinn á Hótel Loftleiðum.
Á fundinum fórum við yfir þau mál sem við leggjum áherslu á fram á vorið.
Hér er pistill um forvarnir.
Sunnudagur 14. febrúar
Um miðjan daginn náði ég að mæta rétt fyrir lok opnunar kosningaskrifstofu Gísla Tryggvasonar í Kópavogi.
Þar var glatt á hjalla og góðar veitingar.
Gísli býður sig fram í 1. sæti lista framsóknarmanna í Kópavogi í komandi prófkjöri vegna sveitastjórnarkosninganna í vor .
Kl.19 buðu Védís og Snorri fjölskyldunni í hollan saltfisk og rjómabollur.
Laugardagur 13. febrúar
Um morguninn gerðu Simmi og Jói góðlátlegt grín að Húnboga í þætti sínum á Bylgjunni.
Hér á þessum link má finna upptökuna þann 13. febrúar, en hún heitir Húnbogi með spjalli.mp3.
Eftir hádegi fórum við í langan göngutúr í Suðurnesið.
Í dag settu Íris og Nonni myndbandið, sem Íris tók í 6 daga ferð leiðsögumannanema, inn á youtube.
Kl.20 hélt Einar Gunnar Einarsson upp á fertugsafmæli sitt í salnum á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni.