Föstudagur 6. ágúst
Kl.7-12 var ég á veiðum í Elliðaánum.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.17 skrapp ég í sjósund með Heiði.
Kl.20 hófst glæsilegt boð hjá Ólafíu Kvaran í tilefni af fertugsafmæli hennar.
Fimmtudagur 5. ágúst
Kl.12 skrapp ég í súpu hjá tengdó.
Kl.13:30 lá leiðin í Greiðuna í klippingu.
Um kvöldið samdi ég tækifærisræðu og vann í garðinum.
Miðvikudagur 4. ágúst
Kl.9 fór hópur af stað í dagsferð með rútu um Borgarfjörðinn.
Í hópnum voru Öystein og Hugrún Kristjánsdóttir, dóttir vina minna Hildar Helgu Gísladóttur og Kristjáns Rafns Heiðarssonar.
Hugrún og Öystein búa á eyju á vesturströnd Noregs, en þau munu gifta sig hér á landi.
Með í för var nánasta fjölskylda þeirra beggja, ásamt vinum þeirra frá Noregi sem eru hingað komnir vegna brúðkaupsins.
Ég var leiðsögumaður í ferðinni.
Fyrst lá leiðin í hvalstöðina í Hvalfirði þar sem við sáum hvernig gert er að nýveiddri langreyð.
Síðan fórum við á Landnámssetrið í Borgarnesi, í Skallagrímsgarðinn, að Hraunfossum og Barnafossi og í Húsafell.
Eftir það ókum við Lundareykjadalinn, yfir Uxahryggi og á Þingvelli.
Eftir skemmtilega göngu um Þingvelli lá leiðin aftur til Reykjavíkur.
Vorum við komin í bæinn um kl.21 eftir 12 tíma skemmtiferð í frábæru veðri.
Bjarni, bílstjóri, sá um að við komumst heil heim og á fínum tíma.
Þriðjudagur 3. ágúst
Fyrri hluti dags fór í að vinna í tölvunni.
Seinni hlutanum varði ég á skrifstofunni á Alþingi og tölvudeildinni.
Um kvöldið undirbjó ég mig fyrir ferð, sem hefst í fyrramálið, um Borgarfjörðinn.
Mánudagur 2. ágúst
Í dag skruppum við Heiður í sjósund, en þar rákumst við á skólafélaga okkar úr MR, skvísurnar úr 6-U.
Hitastig sjávar var 14,6 gráður.
Sunnudagur 1. ágúst
Dagurinn fór í að taka þátt í Síldarævintýrinu og ganga frá húsinu.
Um kvöldið ókum við heim eftir vel heppnaða verslunarmannahelgi.
Laugardagur 31. júlí
Dagurinn fór í að skemmta sér á Síldarævintýrinu á Siglufirði.
Leiðin lá m.a. á Torgið að hlusta á Fílapenslana, á tónleika í í Bátahúsinu og á flugeldasýninguna.