Föstudagur 14. maí
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Tók ég þátt í umræðum um þingsályktun þar sem gert er ráð fyrir að Alþingi, eða skrifstofustjóri þess, hafi afskipti af dómstólum.
Kl.13 sótti ég fund þingflokksformanna í forföllum þingflokksformanns.
Einnig tók ég þátt í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra um utanríkismál og skýrslu samstarfsráðherra Norðurlandanna um norrænt samstarf.
Kl.16:00-18:30 var mín vakt á forsetastóli.
Um kvöldið elduðum við svartfugl.
Hér er myndband frá Eyjafjallajökli.
Fimmtudagur 13.maí
Kl.15-17 var formleg opnun kosningaskrifstofu Framsóknarmanna og óháðra á Austurströnd 3 á Seltjarnarnesi(SPRON húsnæðið).
Margir gestir komu til að hitta frambjóðendur og fá sér veitingar.
Kristjana Bergsdóttir, kerfisfræðingur, leiðir listann.
Kristjana er reynslubolti því hún var á sínum tíma bæjarfulltrúi á Seyðisfirði, varaþingmaður og formaður Landssambands framsóknarkvenna(LFK).
Hún er maraþonhlaupari og er nýbúin að klára Bostonmaraþonið.
Kristjana er með meirapróf og var fyrst kvenna til að keyra strætó.
Var það í Kópavogi í sumarafleysingum.
Lenti hún m.a. í því að karlkyns farþegi steig ekki inn í vagninn heldur afþakkaði far þegar hann sá konu undir stýri.
Sagðist hann taka næsta vagn.
Einnig var hringt í lögregluna af því tilefni að ung kona var undir stýri á strætó.
Hér er pistill þar sem lesa má um ævintýri Kristjönu.
Kristján Þorvaldsson, verkefnastjóri og BS í rafmagnsverkfræði, skipar 2. sæti listans.
Hann er alinn upp á Seltjarnarnesi, sat í skólanefnd á kjörtímabilinu sem er að ljúka og hefur unnið mikið að félagsmálum.
Hér er kynning á Kristjönu og Kristjáni.
Hér er vefsíða framboðsins þar sem lesa má greinar um túlkun Sjálfstæðisflokksins á fjármálum bæjarins.
Miðvikudagur 12. maí
Kl.12:15 -13:15 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Kl.13:40 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi þar sem ég tók þátt í umræðum vegna fyrirspurna til ráðherra.
Kl.18-22 var fundur hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur(SVFR).
Þriðjudagur 11. maí
Kl.10 hófst fundur í stjórn Norræna menningarsjóðsins.
Hér er pistill um úthlutanirnar sem við fórum í gegnum í gær og í dag.
Hér er frétt af mbl.is af stærstu styrkveitingunni.
Seinni partinn fékk stjórn sjóðsins kynningu á nýja Konunglega leikhúsinu, Skuespilhuset), við enda Nýhafnar.
Byggingin er hin glæsilegasta og sérhæfð á allan máta fyrir leiksýningar.
Byggingarkostnaður var 500 milljónir danskra króna.
Kl.19:45 var flug heim.
Mánudagur 10. maí
Kl.5 um morguninn var lent í Köben.
Kl.13:00-17:30 var fundur í Norræna menningarsjóðnum.
Kl.18 fengum við kynningu á Svarta demantnum, sem er nýbygging Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
Nýbyggingin er að mínu mati afar vel heppnuð, en hún tengir nýja hluta bókasafnsins við hið gamla Konunglega bókasafn á látlausan og smekklegan hátt.
Sunnudagur 9. maí
Í dag birtist þessi frétt af framboði Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Sjálfstæðismenn hafa haft meirihlutann í bæjarstjórn í 48 ár(frá því að listakosningar hófust).
Bæjarfulltrúar á Seltjarnarnesi eru 7 og þar af eru 5 frá Sjálfstæðisflokknum.
Þetta þarf að breytast því það er ekki hollt fyrir lýðræðið þegar einn flokkur einokar völdin.
Fulltrúum Sjálfstæðisflokksins er mjög tamt að segja -bærinn okkar-, eins og hann sé nánast einkaeign þeirra.
Kl.11 var fundur lista Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Í morgun átti ég að fljúga á Kaupmannahöfn en vegna eldgossins í Eyjafjallajökli var Leifsstöð lokað.
Kl.15 fór ég með rútu til Akureyrar til að ná flugi þaðan til Köben.
Á leiðinni stoppuðum við í Staðarskála og í Varmahlíð, en ferðin tók yfir 6 klst.
Þar hitti ég m.a. Ara og Jósef á mótorhjólunum sínum.
Í janúar fór ég í frábæra þorrablótsferð á fjöll með s.k. Rottugengi í Ferðaklúbbnum 4x4, Ara og fleirum.
Kl.21:30 fengum við að fara inn í flugsskýli á Akureyrarflugvelli þar sem hressar konur frá Rauða krossinum tóku á móti okkur með samlokum og kaffi.
Þar gátum við beðið ásamt farþegum á leið til Óslóar.
Var reynt að láta öllum farþegum líða eins vel og hægt var miðað við aðstæður.
Kl.2 um nóttina var flogið á Köben.
Laugardagur 8. maí
Kl.14 opnuðu þrjár kosningaskrifstofur framsóknarmanna í kjördæminu.
Fyrst lá leiðin á opnun kosningaskrifstofunnar í Hafnarfirði.
Er hún staðsett á besta stað á Norðurbakkanum, við hringtorgið í miðbæ Hafnarfjarðar gegnt A. Hansen.
Síðan brunaði ég á opnun kosningaskrifstofunnar í Garðabæ, en hún er til húsa í félagsheimili flokksins í Kirkjulundi.
Loks fór ég á opnun kosningaskrifstofunnar á Álftanesi, sem er til húsa í Austurtúni 16.
Mikil stemmning var í framsóknarmönnum sem ég hitti í dag og bjartsýni ríkjandi.
Kl.17 funduðum við nokkur sem stöndum að framboðslista framsóknarmanna og óháðra á Seltjarnarnesi.
Um kvöldið elduðum við fjölskyldan kjúkling með appelsínu- og hunangssósu a´la mamma.