Föstudagur 26. mars
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Fór síðan á reiðhjólinu í bæinn að sinna erindum.
Kl.17 mættir 6-S, bekkurinn minn sem útskrifaðist úr MR, í Árbæjarsafnið til að skoða og fá leiðsögn um nokkur gömul hús.
Þaðan förum við að skoða vinnuaðstöðu Birgis Bjarnasonar
Loks lá leiðin heim til Siggu Björns þar sem við borðuðum, sungum, skoðuðum gamlar myndir og skemmtum okkur fram eftir kvöldi.
Fimmtudagur 25. mars
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Tók ég þátt í umræðum um sanngirnisbætur m.a. til þeirra sem eiga um sárt að binda eftir veru á Breiðavíkurheimilinu, glasafrjóvgun og eina hjúskaparlöggjöf fyrir alla þ.e. gagnkynhneigða og samkynhneigða.
Kl.13:30-15:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.15 hljóp ég í skarðið í allsherjarnefnd Alþingis.
Fór einnig í símaviðtal við danska útvarpið um bann við nektarsýningum og við þýskan blaðamann um sama mál.
Síðan voru atkvæðagreiðslur.
Kl.19 hjólaði ég heim á reiðhjólinu í blíðunni.
Um kvöldið vann ég í verkefnum norræna menningarsjóðsins.
Miðvikudagur 24. mars
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Kl.14:30-16:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.15 kynntu framsóknarmenn tillögur (þær eru neðst í þessari frétt) sínar til endurreisnar efnahagslífsins.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.18 hófst þingfundur að nýju og tók ég þá þátt í umræðum um bólusetningar m.a. vegna pneumókokkasýkinga barna(veldur t.d. eyrnabólgu).
Nú liggur fyrir þingsályktunartillaga sem ég flyt ásamt fleirum um slíkar bólusetningar.
Um kl.19 hjólaði ég heim.
Þriðjudagur 23. mars
Kl.9:30 var morgunkaffi Jöklarannsóknarfélags íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Fór síðan í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Hér er frétt sem birtist á mbl.is vegna svars við fyrirspurn minni um fánalögin.
Kl.12 hélt Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi , erindi um evrópumál í Árnastofnun.
Kl.13 hófst aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar(SAF).
Kl.14 voru atkvæðagreiðslur á Alþingi þar sem við m.a. afgreiddum lagafrumvarp mitt og fleiri um að ekki verði boðið upp á nektardans á veitingastöðum.
Hér er frétt af mbl.is um samþykkt frumvarpsins og frétt af pressan.is.
Hér er frétt af pressan. is(birt 26. mars) um sama mál og er hún í léttari kantinum, en myndina tók ég í ferð svokallaðrar þjóðgarðsnefndar um hálendið á sínum tíma.
Gerði ég grein fyrir atkvæði mínu og tók stuttu síðar til mál um frumvarp sem ég er meðflutningsmaður að um að landið verði gert að einu kjördæmi.
Kl.14:30-16:30 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.17 hófst fundur undirnefndar Sundsambands Íslands sem fjallar um víðavatnssund.
Síðan skrapp ég í 13 ára afmæli Lenu Maríu Árnadóttur, bróðurdóttur minnar.
Kl.20:00-22:30 var ljósmyndakvöld SIglfirðingafélagsins í Reykjavík haldið á Kornhlöðuloftinu þar sem Siglfirðingar rifjuðu upp og skráðu niður nöfn fólks sem sést á gömlum myndum frá Siglufirði.
Mánudagur 22. mars
Kl.11-12 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.12:45 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna þar sem við ræddum um frumvarp samgönguráðherra(KLM) um bann á verkfall flugvirkja.
Kl.13 hitti ég fólk sem ég hafði boðað til mín í viðtal.
Fór að viðtali loknu aftur á þingflokksfund.
Síðan hófst þingfundur þar sem tillaga okkar framsóknarmanna um gerðadóm á deiluna var felld og verkfalli flugvirkja aflýst með lögum.
Framsóknarmenn greiddu atkvæði með gerðadómi en sátu hjá við lagasetninguna.
Vorum við í atkvæðagreiðslum til rétt fyrir kl.19.
Í dag var dreift svari forsætisráðherra við fyrirspurn minni vegna fánamálsins um að bændur megi nota íslenska fánann á búvörur sínar.
Einnig var fyrirspurn minni um veiðar á rjúpu, gæs og hreindýrum á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs til umhverfisráðherra dreift á Alþingi í dag.
Kl.20 hófst opinn fundur Framsóknarfélags Seltjarnarness í Valhúsaskóla vegna komandi sveitastjórnarkosninga.
Á fundinum var ákveðið að bjóða fram B-lista, lista Framsóknarflokksisn og óháðra.
Sunnudagur 21. mars
Fyrir hádegi fylgdist ég með ÍM50, Íslandsmeistaramótinu í sundi í 50 metra laug.
Fylgdist einnig með því hvernig norsku fjölmiðlarnir fjalla um eldgosið undir Eyjafjallajökli.
Hér er umfjöllun Aftenposten og hér umfjöllun Dagbladets
Í gær hitti ég Siv Jensen, formann Framfaraflokksins í Noregi, og fleiri flokksfélaga hennar og hélt erindi fyrir þau um bankahrunið á Hótel Nordica.
Þau náðu líka eldgosi í ferðinni.
Hér er umfjöllun Verdens Gang.
Laugardagur 20. mars
Kl.11-12 hélt ég fyrirlestur fyrir þingmenn og aðstoðarfólk Fremkrittspartiet í Noregi á Hótel Nordica.
Fyrirlesturinn fjallaði um bankahrunið á Íslandi og þróun samfélgsins frá þeim tíma.
Að fyrirlestri loknum borðaði ég með hópnum.
Eftir hádegi fylgdist ég með ÍM50, Íslandsmeistaramótinu í sundi í 50 metra laug.
Eftiir miðnætti sagði Hákon okkur að hann hefði séð á netinu að eldgos væri hafið í Eyjafjallajökli.
Fylgdumst við með atburðarrásinni aðeins fram eftir nóttu.