Föstudagur 15. febrúar
Var á skrifstofunni fyrir hádegi.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.14:30 hófst fundur um konur og efnahagsleg- og pólitísk völd á Háskólatorginu.
Fimmtudagur 14. janúar 2010
Kl.13:20 var flug frá Kaupmannahöfn heim til Íslands.
Um kvöldið fórum við Hildur systir í heimsókn í Hafnarfjörðinn til Ingunnar systur.
Í dag er afmæli hér á heimasíðunni www.siv.is því nú eru 8 ár liðin síðan ég byrjaði að skrifa daglega í dagbókin.
Heimasíðan sjálf er eldri, en hún komst í gagnið í mars 1999 fyrir alþingiskosningarnar það ár.
Skilst mér að hún hafi verið næst fyrsta stjórnmálasíðan af þessari gerð á eftir síðu Björns Bjarnasonar.
Í tilefni afmælisins vil ég þakka þeim sem hafa heimsótt síðuna, bæði fastagestum og öðrum.
Ef maður ætlar að halda úti lifandi heimasíðu þarf að beita sig talsverðum aga og uppfæra hana daglega.
Það hef ég leitast við að gera.
Örsjaldan tekst ekki að uppfæra síðuna daglega þar sem ég er þá utan tölvusambands.
Þá legg ég mikið upp úr því að upplýsa hvenær síðan verður uppfærð næst(t.d. einum eða tveimur dögum síðar).
Nú eru yfir 16.400 myndir í dagbókinni.
Í gegnum tíðina hef ég fundið að myndirnar eru vinsælar og það er nokkuð oft spurst fyrir um þær.
Hægt er að hafa samband við mig í gegnum síðuna með því að fara á "Þín skoðun" á svörtu stikunni hér fyrir ofan.
Allt sem skrifað er þar( í "Þín skoðun") fer einungis til mín, þ.e. það birtist ekki öðrum.
Miðvikudagur 13. janúarKl.9 var flokkahópafundur ALDE-group í Evrópuþinginu.
Kl.11-12 var fundur um Eystrasaltsamstarf þar sem við, norrænu fulltrúarnir, ræddum við þingmenn og sérfræðinga m.a. frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Kl.12-14 var hádegisverðarfundur þar sem Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins og Pat The Cope Challager, formaður nefndar ESB sem fylgist með aðildarviðræðum ESB og Íslands fóru yfir viðræðuferlið.
Á fundinum gafst mér gott tækifæri til að lýsa stöðu mála á Íslandi og skýra hvers vegna okkur hugnast ekki icesave-lögin sem nú liggja á borðinu og fara í þjóðaratkvæðagreiðslu bráðlega.
Kl.14:30 fór ég í íslenska sendiráðið.
Kl.17:30 átti að vera flug til Köben, en sökum bilunar í vél frestaðist flugið um 2 tíma.
Varð ég því strandaglópur í Kaupmannahöfn ásamt Stefáni Jökulssyní.
Þriðjudagur 12. janúar
Kl.10:30 hitti ég Stefán Hauk Jóhannesson, sendiherra Íslands hjá Evrópusambandinu.
Síðan var fundur miðjumanna ásamt norrænu sendiherrunum hjá ESB.
Seinni part dags voru fundir með fulltrúum Evrópuþingsins og yfirheyrslur á nýjum framkvæmdastjórum ESB.
Um kvöldið var nýársmóttaka ALDE(Alliance of Liberals and Democrats for Europe) fulltrúanna í Evrópuþinginu.
Þegar ég var á leiðinni í móttökuna hringdi Dagbladet i Noregi í mig og vildi fá viðbrögð við þeirri skrýtnu hugmynd, sem hefur komið fram á Facebook, að Ísland yrði hluti af Noregi.
Mánudagur 11. janúar
Um miðjan daginn var flug til Kaupmannahafnar og þaðan til Brussel.
Næstu daga munu við, nokkrir miðjumenn í Norðurlandaráði, hitta flokkssystkini okkar í Evrópuþinginu á samráðsfundum.
Sunnudagur 10. janúar
Í Silfri Egils í dag var athyglisvert viðtal við Alain Lipietz, þingmann á Evrópuþinginu og Evu Joly.
Hér er frétt mbl.is um málflutning þeirra um að icesave-samingurinn er ekki ásættanlegur fyrir Íslendinga.
Kl.14 fórum við Heiður í Norræna Húsið þar sem Fiann Paul, ljósmyndari, veitti leiðsögn um ljósmyndasýningu sína.
Myndirnar eru teknar á Grænlandi.
Síðan skruppum við í kaffi.
Laugardagur 9. janúar
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Rætt var m.a. um þorrablóti framsóknarmanna sem haldið verður laugardaginn n.k. 16. janúar í Lionssalnum í Auðbrekku 25-27.
Miðasala er hjá Unu Maríu 89-64-189 og Sveini 82-11-027 .
Það verður pottþétt fjör eins og alltaf.
Hér er dagskráin.
Hér er frétt af The Times um icesavemálið.