Færeyjar myndir eru komnar inn.
Föstudagur 30. júlí
Um morguninn lá leiðin í garð Listasafnsins.
Kl.16 var flug heim.
Seinni partinn lá leiðin á Síldarævintýrið á Siglufirði.
Fimmtudagur 29. júlí
Í dag var seinni hluti fundar norræna menningarsjóðsins í Norðurlandahúsinu.
Síðan vorum við viðstödd hátíðarhöldin framan við Lögþingið.
Þar var flutt hátíðarræða og kórinn söng ættjarðarlög.
Í lok afhafnar gengu þingmenn til Lögþings og héldu stuttan fund.
Þótti mér mjög gaman að geta verið viðstödd þann fund og hitta vini mína í Lögþinginu.
Seinni partinn fórum við í grunnskólann við Lögmannagötu og síðan til Götu þar sem Tróndur Patursson, listamaður, sýndi okkur kirkjulistaverk sín.
Einnig heimsóttum við Edward Fuglö, myndlistarmann í Klakksvík, sem kynnti okkur verk sín.
Að lokum lá leiðin í Gjógv.
Þegar komið var aftur til Þórshafnar buðu Þóra og Martin Næs okkur heim til sín.
Um kvöldið var lokasprettur Ólafsvökunnar þegar allir sungu færeyska söngva og dönsuðu Orminn langa á torginu.
Miðvikudagur 28. júlí
Í dag var fundur í norræna menningarsjóðnum í Norðurlandahúsinu.
Um miðjan daginn var Ólafsvakan sett með viðhöfn fyrir framan Lögþingið.
Færeyingar voru margir í þjóðbúningum og sínu fínasta pússi.
Náðum við að skreppa á m. a. opið hús í Fútastovu, íslensku sendistofunni.
Einnig náði ég að fylgjast aðeins með kappróðri, en hann er einn af hápunktum Ólafsvökunnar.
Seinni partinn fengum við kynningu á starfsemi Steinprents og Listasafnsins.
Um kvöldið buðu Marita og Símon okkur heim í glæsilegt færeyskt hlaðborð með skerpukjöti, hvalkjöti og öllu tilheyrandi.
Þriðjudagur 27. júlí
Í dag lá leið okkar á flugvöllinn að sækja hina fulltrúana.
Síðan sigldum við út í Mykines, sem er vestasta eyja Færeyja.
Í Mykinesi er mikið og líflegt fuglalíf.
Seinni partinn var kynning á forlaginu sem heitir Sprotinn í Vestmanna, en það forlag gefur m.a. út orðabækur á færeysku.
Um kvöldið heimsóttum við Hera og Bínu.
Mánudagur 26. júlí
Kl.17 var flug til Færeyja, en þar verður fundur Norræna menningarsjóðsins haldinn að þessu sinni.
Hér eru vefir sem hægt er að kíkja inn á til að fylgjast með fréttum í Færeyjum, www.portal.fo og www.sosialurin.fo.
Um kvöldið hittum við Hera og Bínu.
Hér er greinin "Brev fra Island" eftir mig sem birtist í dagblaðinu Sosialurin í Færeyjum í dag.
Sunnudagur 25. júlí
Fjölskyldan hélt til veiða í dag, en ég hætti við að fara því á morgun liggur leið mín á fund til Færeyja og ég þurfti að klára að lesa gögn fyrir fundinn.
Hluti dagsins fór í að taka til í bílskúrnum og fara á Sorpu.
Um kvöldið pakkaði ég í tösku fyrir Færeyjarferðina.
Laugardagur 24. júlí
Kl.11:30 tók ég á móti góðum norskum gestum, Martin Ystenes og fjölskyldu.
Sýndi ég þeim Alþingi.
Martin er prófessor í verkfræði í Tækniháskólanum í Noregi(NTNU Norges teknisk-naturvitenskaplig universitet).
Hefur Ystenes fjölskyldan ferðast um allt Ísland í nær 3 vikur og fór nú síðast þvert yfir hálendið.
Þau eru orðnir miklir Íslandsvinir og stefna að því að heimsækja landið aftur síðar.
Hér er heimasíða Martins www.ystenes.com.
Þessa mynd og texta setti hann inn á vefinn eftir heimsóknina.
Um kvöldið hjólaði ég niður í bæ og fór í grillveislu í garðinum hjá Úlla og Siv.