Föstudagur 28. maí
Eftir hádegi fór ég á milli kosningaskrifstofa í Suðvestur-kjördæmi(fór í gær í Mosfellsbæinn).
Fyrst fór ég á kosningaskrifstofuna í Garðabæ.
Síðan í Hafnarfjörðinn og svo út á Álftanes.
Þar næst fór ég á kosningaskrifstofu okkar í Kópavogi.
Kl.18 fór ég í útskriftarveislu Árna Freys Snorrasonar, en hann var að útskrifast sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Síðan var ég til kl.22 í úthringinum á kosningaskrifstofu Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Fimmtudagur 27. maí
Kl.9:00-11:30 var ég á fyrirlestrum sem haldnir voru í tilefni af 10 ára afmælishátíð verkefnisins Campy on Ice.
Það verkefni fór af stað á sínum tíma í kjölfar kamfýlóbaktersfaraldurs sem geisaði hér á landi árið 1999.
Þá var kjúklingakjöt sýkt af kamfýlóbakter og smitaði fólk(yfir 300 landsmenn smituðust það ár).
Eftir mikið rannsóknar- og smitvarnarátak sem m.a. kanadíski sérfræðingurinn, Ruff Lowman, kom að hefur náðst gríðarlega góður árangur í að ná kjúklingakjötinu hreinu og heilbrigðu.
Kamfýlóbaktermálið var fyrsta málið sem ég tók inn í ríkisstjórn á sínum tíma árið 1999.
Rannsóknar- og smitvarnarátakið var afar vel heppnað og hefur sparað umtalsverða fjármuni þar sem sýkingar eru nú færri hér en í mörgum nágrannaríkjum okkar.
Í hádeginu lá leiðin níður á Alþingi.
Eftir hádegi bar ég út blað Framsóknar og óháðra, B-listans, í Nesbalann, Sævargarða og Sefgarða á Seltjarnarnesi.
Kl.17 fór ég að kíkja á kosningabaráttuna í Mosfellsbæ.
Síðan var ég á kosningaskrifstofu Framsóknar og óháðra, B-listans, að vinna í kosningabaráttunni til kl.23.
Miðvikudagur 26. maí
Kl.10 skrapp ég á kosningaskrifstofu framsóknarmanna í Mosfellsbæ.
Kl.15 Þorsteinn Örn Sigurfinnsson jarðsunginn frá Guðríðarkirkju.
Síðan fór ég í heimsókn á tannlæknastofuna til Ingunnar, systur.
Kl.20:00-22:30 var fræðslufundur Framsóknar og óháðra um skipulagsmál á Seltjarnarnesi.
Á fundinum flutti ég framsögu um skipulagsmál á Seltjarnarnesi þar sem ég fjallaði um fortíðina, nútíðina og framtíðina.
Þriðjudagur 25. maí
Kl.11 fundaði ég á Nordica hótelinu.
Um miðjan daginn vann ég í gögnum.
Kl.15:30 var fundur á nefndasviðinu á Alþingi þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna hittu finnska blaðamenn.
Kl.17:30 hófst kvennakvöld framsóknarmanna í Garðabæ.
Kl.20 var fundur með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, á Kænunni í Hafnarfirði.
Þaðna fór ég á fræðslukvöld um fjármál Seltjarnarnesbæjar hjá Framsókn og óháðum, B-listanum, á Austurströnd 3 (gamla SPRON) á Seltjarnarnesi.
Kvöldið endaði á því að við sátum frameftir með nágrönnunum í botnlanganum í götugrilli.
Mánudagur 24. maí
Kl.10:30 var fundur á kosningaskrifstofu Framsóknar og óháðra á Austurströnd 3 (gamla SPRON) á Seltjarnarnesi.
Kl.15:30 nýttist tíminn í að taka ljósmyndir.
Kl.17 var fundur á kosningaskrifstofu Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Síðan nýttist tíminn í að taka ljósmyndir af forystu B-listans á Seltjarnarnesi.
Sunnudagur 23. maí
Dagurinn nýttist m.a. í að planta út sumarblómum í blómapotta.
Kl.17 var fundur á kosningaskrifstofu Framsóknar og óháðra á Austurströnd 3 (gamla SPRON) á Seltjarnarnesi.
Um kvöldið grilluðum við lambakótilettur í blíðunni, en í dag var veðrið einstaklega gott.
Laugardagur 22. maí
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna á kosningaskrifstofunni á Digranesvegi 12.
Fór þaðan í heimsókn á kosningaskrifstofu okkar í Hafnarfirði og svo að kaupa sumarblóm í IKEA.
Um miðjan daginn var ég á kosningaskrifstofu Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Seinni part dags ágerðist hálsbólgan og kvefið þ.a. ég hélt mig heima.