Föstudagur 5. febrúar
Kl.11 var kynning á orðabókinni ISLEX.
Hér er efni um hana af vefnum.
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Í upphafi fundar minntist Ólafur Egilsson félaga okkar, Björns Jónssonar, en hann féll frá á miðvikudaginn síðasta.
Kl.18 fór hópur jeppafólks af stað frá Select áleiðis á hálendið.
Fimmtudagur 4. febrúar
Kl.10 var ég á flokksskrifstofunni að rita í minningarbók um Steingrím Hermannsson.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra þar sem ég spurði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, út í fjárhagsmálefni sveitarfélaga s.s. Álftaness.
Kl.12 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Kl.16:30-19:00 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Miðvikudagur 3. febrúar
Kl.12 fundaði ég vegna stjórnmálastarfa.
Kl.13:30 hófst þingfundur á umræðum um störf þingsins.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi þar sem við m.a. fengum kynningu á fjárhagsstöðu Álftaness.
Kl.19:00-21:30 funduðum við Róbert Marshall, alþingismaður, með fulltrúum Slóðavina hjá Arctic Trucks.
Þriðjudagur 2. febrúar
Kl.11 hófst fundur á skrifstofu Norræna menningarsjóðsins þar sem Olemic Thommesen, nýr stjórnarformaður, mætti.
Hann er þingmaður fyrir hægri menn á norska Stórþinginu.
Vélinni heim um kvöldið seinkaði nokkuð vegna snjóa í Kaupmannahöfn.
Var kominn heim í hús um kl.00:30.
Mánudagur 1. febrúar
Kl.8 var flug til Kaupmannahafnar, en þar er fundur í tengslum við stjórn Norræna menningarsjóðsins.
Um miðjan daginn frétti ég að Steingrímur Hermannsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, hefði látist.
Steimgrímur var einn öflugasti stjórnmálamaður sem þjóðin hefur átt að mínu mati.
Hann skipaði heiðurssæti framboðslista okkar framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum í fyrra og dró hvergi af sér í flokksstarfinu þá þrátt fyrir háan aldur.
Ég mun ávallt minnast hans með miklu þakklæti.
Sunnudagur 31. janúar
Um miðjan daginn heimsótti ég Björn Jónsson á Landakotsspítala.
Kl.14 hófst handboltaleikur Íslands og Póllands í Evrópumeistaramótinu.
Kl.16 var fundur framsóknarmanna á Seltjarnarnesi.
Um kvöldið horfðum við á norska þáttinn Himinblámi.
Laugardagur 30. janúar
Kl.11 var fundur framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Skrapp svo í IKEA.
Kl.13 hófst handboltaleikur Íslands og Frakklands í Evrópumeistaramótinu, en Frakkar unnu þann leik.
Kl.15 hitti ég vinkonur mínar í Perlunni.
Um kvöldið buðum við vinahjónum okkar í önd og gæs.