Föstudagur 20. nóvember
Kl.10:05 funduðum við með Jozefinu Topalli, forseta albanska þingsins og öðrum forystumönnum þingsins.
Hún er fyrsta konan sem gegnir stöðu þingforseta í Albaníu, en landið var einangrað kommúnistaríki þar til nýlega.
Síðan funduðum við með Evrópunefnd þingsins, en Albanía hefur sótt um aðilda að ESB.
Albanir eru nú að undirbúa svör við löngum spurningalista frá ESB, á svipaðan hátt og við Íslendingar skiluðum inn til sambandsins nýlega.
Kl.12:15 funduðum við með forsætisráðherra Albaníu, Sali Berisha og embættismönnum hans.
Kl.13:30 var hádegsiverðarboð Jozefínu Topalli, forseta albanska þingsins.
Kl.18 var fundur með Ilir Meta, utanríkisráðherra Albaníu og kl.19 fundur með Ferdinand Xhaferri, menninga- og ferðaþjónusturáðherra Albaníu.
Um kvöldið var boð Nasip Naco, varaforseta albanska þingsins og þingmönnunum Fatos Beja, Mesila Doda og Arenca Trashani.
Fimmtudagur 19. nóvember
Í dag birtist minningargrein í Morgunblaðinu eftir okkur systurnar um frænku okkar Kristbjörgu Marteinsdóttur.
Kl.10:10 var flug til Albaníu.
Tilefnið er boð albanska þingsins til forseta Alþingis frá því á síðasta ári.
Albanir sóttu okkur heim fyrir nokkru og má m.a. geta þess að utanríkisráðherra þeirra var viðstaddur á þingpöllum Alþingis þegar við samþykktum heimild til útvíkkunar NATO.
Albanir eru nú meðlimir í NATO, en voru fyrir tæpum tveimur áratugum einangrað kommúnistaríki í Evrópu, líklega eitt af einangruðustu ríkjum heims á þeim tíma.
Sá á netinu að fjölmiðlar eru að slá förinni upp á neikvæðan hátt.
Alþingi hefur ákveðið í ljósi hagræðingar ákveðið að skera niður erlend samskipti.
Til dæmis mega varafulltrúar ekki fara á fundi erlendis þótt aðalfulltrúi forfallast, og fer þá enginn fyrir Íslands hönd.
Einnig er búið að skera af ferðir á ýmis þing og fundi til sparnaðar.
Sendinefndir sem nú fara með forseta Alþingis eru við lágmarksmörk.
Tveir þingflokkar senda nú þingmenn með í opinberar heimsóknir og fóru um daginn fulltrúi Vinstri grænna, Árni Þór Sigurðsson og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiður Elín Árnadóttir, með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, til Brussel.
Að þessu sinni erum við Steinunn Valdís Óskarsdóttir með henni í för, Steinunn Valdís fyrir Samfylkinguna og ég fyrir Framsóknarflokkinn.
Hér munum við m.a. ræða við forystu þingsins og ríkisstjórnarinnar um umsókn Albaníu að Evrópusambandinu, en Albanía er einmitt að svara spurningum í umsóknarferlinu á sama hátt og við. .
Á flugvellinum hittum við Jozefinu Topalli, forseta albanska þingsins.
Seinnipartinn funduðum við með fulltrúa Actavis og Isuf Berberi, ræðismanni Íslands í Albaníu.
Um kvöldið funduðum við með Fatos Rexha, framkvæmdastjóra Actavis í Albaníu og samstarfsmanni hans.
Miðvikudagur 18. nóvember
Kl.9:10-10:30 var ég í fjárlaganefnd að kynnan nefndarálit mitt vegna heilbrigðiskafla fjárlaga.
Kl.11:50 lá leiðin út á flugvöll og til Vínarborgar.
Þriðjudagur 17. nóvember
Um morguninn fór ég í kaffi á stofuna til pabba og svo á skrifstofuna mína.
Kl.12 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi.
Tók ég þátt í utandagskrárumræðum um tækifæri í heilbrigðisþjónustunni.
Kl.15 skrapp ég að hitta norska lektorinn í Norræna Húsinu.
Fór síðan í þingið og tók þátt í umræðum um náttúruverndaráætlun.
Kláraði ég einnig nefndarálit mitt vegna heibrigðiskafla fjárlaga.
Var komin heim kl.19.
Kl.20-23 var haldinn fjölmennur opinn fundur Slóðavina í sal Arctic Trucks um slóða- og vegamál.
Mánudagur 16. nóvember
Kl.11-12 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.12:15-13:30 var rótarýfundur á Hótel Borg.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi.
Kl.17 var sjósund, en í dag var hitastig sjávar 5,6 gráður.
Kl.19:00-21:30 var ég á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni að vinna í flokksstarfinu.
Sunnudagur 15. nóvember
Dagurinn fór í að vinna í nefndaráliti mínu til fjárlaganefndar vegna heilbrigðiskafla fjárlagafrumvarpsins.
Seinni partinn fórum við Hildur systir í góða göngu.
Um kvöldið vann ég áfram í tölvunni.
Laugardagur 14. nóvember
Kl.10 mætti ég á aðalfund framsóknarmanna í Mosfellsbæ.
Þaðan fór ég í morgunkaffi framsóknarmanna í Kópavogi.
Um miðjan daginn var ég heima að sýsla í tiltektum.
Kl.19 skrapp ég í fordrykk hjá framsóknarmönnum í Mosfellsbæ og leit við hjá Hildi systur.
Um kvöldið fór ég á fjölmenna árshátíð mótorhjólamanna í MSÍ í Rúbín í Öskjuhlíðinni.
Þar var rífandi stemmning eins og alltaf og skemmtiatriðin sem Magnús Sveinsson býr alltaf til fyrir þessar hátíðir slógu algerlega í gegn að venju.
Að þessu sinni voru það flott mótorhjólamyndbönd úr keppnum sumarsins og gríníþróttafréttatími.
Það eru ófáir klukkuktímarnir sem hljóta að fara í að útbúa þessi myndbönd.
Að venju voru veitt verðlaun fyrir afrakstur sumarsins á hátíðinni.
Í dag náði ég einnig að heimsækja vin á Landsspítalanum-háskólasjúkrahúsi.