Föstudagur 7. maí
Morguninn fór í gagnavinnslu.
Í hádeginu var rótarýfundur, en ég var stutt þvi kl.12:30 hófust atkvæðagreiðslur á Alþingi.
Kl.13:10-14:30 og kl.16-17 voru mínar vaktir á forsetastóli.
Tók ég þátt í umræðum um nokkur mál í dag s.s. utandagskrárumræðu um umhverfismál, bólusetningar stúlkna gegn HPV-veirunni sem getur valdið leghálskrabbameini og um breytinga á þingsköpum þ.a. segi ráðherra sig frá þingmennsku eigi hann afturkvæmt í þingið verði honum veitt lausn úr ráðherraembætti á kjörtímabilinu.
Kl.17 var hátíðardagskár á Digranesvegi 12 í tilefni opnunar kosningaskrifstofu framsóknarmanna í Kópavogi.
Til stóð að fara út á land, en vegna anna breyttust plönin.
Fimmtudagur 6. maí
Dagurinn var tekinn snemma í Stokkhólmi.
Kl.8 hófst morgunverðarfundur í Celsíussalnum um bankahrunið á Íslandi, umsókn okkar um aðild að ESB og eldgosið í Eyjafjallajökli.
Á sænsku var heiti fundarins-Islands ödesår? Krisrapport, EU-ansökan och vulkanutbrott-.
Framsögur höfðu Lára Long, flugumferðastjóri og Baldvin Þór Bergsson, fréttamaður, en þau búa í Svíþjóð.
Síðan var pallur þar sem við Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð og Anders Ljunggren, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, bættumst í hópinn.
Að fundi loknum skrapp ég í kaffi með Guðmundi Árna Stefánssyni, sendiherra og Göran Montan, þingmanni Moderatarna(hægri flokksins) í Svíþjóð.
Göran er mikill Íslandsvinur, en hann á m.a. hesta á Íslandi og gefur út blaðið Eiðfaxa.
Fór síðan á flugvöllinn og flaug heim.
Var komin á Alþingi seinni partinn.
Kl.18-19 var mín vakt í forsetastóli á Alþingi.
Miðvikudagur 5. maí
Kl.7:50 var flogið til Stokkhólms.
Nýtti daginn í að vinna í tölvunni og undirbúa þátttöku í morgunverðarfundi um bankahrunið á Íslandi, umsókn okkar um aðild að ESB og norrænt samstarf.
Þriðjudagur 4. maí
Nýtti daginn í að vinna í málum tengdum sveitarstjórnarkosningum.
Kl.16:30-18:00 var kynningarfundur tengdur ferðaþjónustunni.
Kl.20 hitti ég Heimi Örn, Þórdísi, Birnu og Benna til að fara yfir verkefni í sjósundi.
Mánudagur 3. maí
Kl.7:30 vorum við Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, barnalæknir, í beinni útsendingu á Rás 2 vegna þingsályktunartillögu sem ég er fyrsti flutningsmaður að og fjallar um að taka beri upp bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum.
Hér er upptaka af viðtalinu.
Fór síðan í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Vann svo að ýmsum málum tengdum kjördæminu.
Kl.15 fórum við Benedikt Hjartarson, sjósundskappi, í sjónvarpsupptökur fyrir Skjá 1 hjá tvíburabræðrunum, Gunnari og Ásmundi Helgasonum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar nýtti tækifærið og fékk að æfa sig á að hífa Gunnar Helgason upp úr sjónum og skila honum í land í upptökunum.
Þátturinn fjallaði aðallega um sjósund.
Kl.20 var fundur Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Sunnudagur 2. maí
Kl.15 var ég viðstödd opnun kosningaskrifstofu framsóknarmanna í Fjallabyggð á Siglufirði.
Vel var mætt á opnunina, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins mætti einnig á viðburðinn.
Seinni partinn lá leiðin suður.
Laugardagur 1. maí
Í dag stóð Sundsamband Íslands(SSÍ) fyrir svokölluðu Garpamóti í sundi í sundhöllinni á Siglufirði.
Um 60 sundmenn kepptu í mótinu.
Mótið var mjög skemmtilegt enda léttleikinn allsráðandi á Garpamótum.
Seinni partinn skrapp ég í vélsleðaferð upp í fjöllin milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Sleðafærið var afar gott og veðrið eins og best verður á kosið til fjalla.
Um kvöldið stóð bæjarstjórn Fjallabyggðar fyrir móttöku fyrir sundmennina í Bátahúsinu áður en lokahóf Garpamótsins hófst í Allanum.
Hér er skjal með úrslitunum í Garpamótinu í sundi.