Föstudagur 9. apríl
Kl.11 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Fimmtudagur 8. apríl
Kl.16 fór ég á fund vegna sveitarstjórnarmála á flokksskrifstofunni.
Kl.17:15 var fundur á sama stað um færslu á sérhæfðri félagsþjónustu fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, en stefnt er að slíkri yfirfærslu þann 1. jan. næstkomandi.
Kl.19:30-22:30 var ég á skemmtilegu og nytsamlegu námskeiði Heiðar A. Björnsdóttur í Heilsuhúsinu í Lágmúla.
Á námskeiðinu kenndi hún tómstundaræktun grænmetis- og kryddjurta.
Námskeiðið var frábært og lærði ég mörg góð og nytsamleg trix til að fá góða og hraðvaxta uppskeru.
Nú þegar er ég búin að forræktað kóríander, basilikum, dill og steinselju og hlakka til að nýta mér trixin í frekari ræktun.
Heiður kennir á sama einskvölda námskeiðinu aftur á þriðjudaginn 13. apríl og þriðjudaginn 20. apríl á sama stað og kostar einskvölda námskeiðið 4.500 kr.
Get ég bent þeim sem hafa áhuga á að borða krydd- og matjurtir úr eigin glugga/garði á að hægt er að skrá sig á námskeið hjá henni í netfanginu lagmuli@heilsuhusid.is.
Miðvikudagur 7. apríl
Kl.13 fór fram útför Birnu Árnadóttur frá Kópavogskirkju.
Bar ég kistuna ásamt Hansínu Björgvinsdóttur, Sigurbjörgu Björgvinsdóttur, Unni Stefánsdóttur, Unu Maríu Óskarsdóttur, Ómari Stefánssyni, Andrési Péturssyni og Sveini Sigurðssyni.
Að athöfn aflokinni var erfidrykkja í Safnaðarheimili Kópavogskirkju.
Hér er minningargrein mín um Birnu sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Þriðjudagur 6. apríl
Dagurinn fór í að taka til og vinna í gögnum.
Seinni partinn skruppum við Húni og Elín Björk i IKEA.
Um kvöldið elduðum við kjúkling.
Mánudagur 5. apríl
Um miðjan daginn lá leiðin í bæinn aftur.
Á leiðinni skoðuðum við seli, Gerðuberg og fengum okkur kaffi og kökur í Landnámssetrinu.
Vorum við komnar í bæinn um kl.18.
Sunnudagur 4. apríl
Kl.13 fór ég á Snæfellsnes til Ingunnar, Sigurgeirs og Simma með mömmu og Kari, norskri æskuvinkonu hennar.
Um kvöldið borðuðum við páskalæri og skemmtum okkur hið besta saman.
Laugardagur 3. apríl
Dagurinn fór í að vinna í tölvunni og annað stúss.
Kl.18:30 buðu Heiður og Konni okkur í skemmtilegt kvöldverðarboð.