Föstudagur 21. maíÍ dag lá leiðin heim í gegnum Kaupmannahöfn.
Á leiðinni út á flugvöll náðum við að skoða hluta Kalíningrad og stoppa aðeins í Dómkirkjunni sem verið er að endurbyggja eftir stórfelldar skemmdir frá stríðstíma.
Á flugvellinum var mikill hægagangur í vegabréfaskoðuninni.
Þegar við nálguðumst Keflavíkurflugvöll blasti askan úr Eyjafjallajökli við okkur í norðri.
Fimmtudagur 20. maí
Kl.9:30-11:00 var fundur sendinefndar Norðurlandaráðs ásamt þingmönnum Kalíningrad héraðsins í Rússlandi undir forystu forseta þingsins hér, Sergey Bulychev.
Kl.11:15-12:30 var kynning á Russian State Kant University, en sá háskóli sérhæfir sig m.a. í öreindafræði og læknavísindum.
Síðan fórum við í forsætisráðuneytið þar sem við hittum ráðherra efnahagsmála.
Eftir hádegi heimsóttum við DSV, flutningafyrirtækið, en Danir reka það fyrirtæki m.a. hér í Kalíningrad.
Einnig fengum við kynningu á starfsemi Norrænu upplýsingaskrifstofunnar og verkefnis á hennar vegum sem lýtur að aðstoð við starfsemi grasrótarsamtaka sem hjálpa þeim sem hafa smitast af HIV/AIDS.
Um kvöldið bauð þingið í Kalíningrad héraði okkur til kvöldverðar.
Miðvikudagur 19. maí
Kl.9 lá leiðin til Gatchina héraðsins, sem er rétt utan við St. Pétursborg.
Kl.10:30 hófst fundur sendinefndar þingmanna Norðurlandaráðs ásamt bæjarfulltrúum frá héraðinu.
Sögðu þeir okkur frá samstarfi þeirra við norrænar stofnanir og frá helstu fjárfestingum og framförum á svæðinu.
Eftir hádegi sýndu þeir okkur skólphreinsistöðina, en endurnýjun hennar er studd með lánum og styrkjum frá Norræna fjárfestingarbankanum og sænska þróunarsjóðnum.
Þegar við höfðum skoðað skólphreinsistöðina í Gatchina héraðinu sýndu þeir okkur litla höll sem verið er að gera upp til að freista þess að fá ferðamenn til að staldra við á svæðinu.
Um kvöldið flugum við til Kalíningrad héraðsins.
Þriðjudagur 18. maí
Kl.8:30 héldum við af stað frá St. Petersburg til hafnarinnar í Primorsk, en ferðin þangað tók um tvo og hálfan tíma.
Í höfninni í Primorsk er olíu lesta á skip, en um 60% hennar fer til Rotterdam.
Höfnin hefur fengið verðlaun sökum þess að hún þykir hafa staðið sig vel í umhverfismálum.
Funduðum við þar með stjórnendum Transneft, bæjarfulltrúum og þingmönnum af svæðinu.
Seinni partinn lá leiðin til Vyborg þar sem við funduðum með bæjarfulltrúum og skoðuðum hitaveituna á staðnum, en hún hefur fengið lán hjá Norræna fjárfestingarbankanum.
Um kvöldið lá leiðin tilbaka til St. Pétursborgar.
Mánudagur 17. maí
Kl.10 funduðum við með þingmönnum Leníngradhéraðsins.
Síðan hófust vinnufundur þar sem við ræddum um ákveðin málefni.
Ég var í forsvari fyrir þingmenn Norðurlandaráðs á fundinum sem fjallaði um heilbrigðis- og félagsmál.
Eftir hádegi funduðum við á Norrænu upplýsingaskrifstofunni þar sem nokkrir fyrirlesarar kynntu fyrir okkur takmarkanir á frelsi fjölmiðla í Rússlandi, réttindi kvenna á vinnumarkaði, áætlanir í umhverfismálum og baráttu gegn mansali.
Um kvöldið buðu þingmenn Leníngradhéraðsins okkur í hátíðarkvöldverð.
Sunnudagur 16. maí
Kl.8:40 var flug til St. Petersburg í Rússlandi.
Á leiðinni inn í borgina litum við inn í Catherine's palace.
Höllin, sem er afar falleg, var nýlega gerð upp og er hún mikilvæg í sögu borgarinnar.
Seinni partinn hittum við Mika Boedeker, framkvæmdastjóra norrænu upplýsingaskrifstofunnar í St. Petersburg.
Hér er sendinefndin á leið til Mika Boedeker.
Laugardagur 15. maí
Kl.13 var hópmyndataka framboðslista Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi.
Kl.17:15 var flug til Köben.
Næstu daga er fundaferð hluta Norðurlandaráðs þar sem við munum hitta þingmenn í tveimur hérðuðum Rússlands, en ráðið hefur aukið samstarf sitt á síðustu árum við grannsvæðin, Eystrasaltsríkin og vesturhluta Rússlands.