Föstudagur 25. desember
Kl.13 var fjölskylduveisla heima hjá Védísi, Snorra, Lenu og Árna Frey þar sem við borðuðum hangikjöt og heimalagaða vanilluísinn hennar Erlu, tengdó.
Um kvöldið undirbjuggum við fjölskylduveislu morgundagsins sem verður hér hjá okkur.
Fimmtudagur 24. desember
Dagurinn fór í að undirbúa jólamatinn.
Kl.18 kom mamma til okkar í jólamatinn.
Borðuðum við saman grafinn lax í forrétt, rjúpur í aðalrétt og ofnbakaða ávexti með makkarónukökum, súkkulaði og ístertu í eftirrétt.
Miðvikudagur 23. desember
Dagurinn fór að mestu í að útbúa jólamat og ganga frá.
Kl.18 var vel útilátin skötuveisla hjá tengdó, Húnboga og Erlu, að venju.
Við fjölskyldan mættum í skötuna ásamt Védísi, Snorra og Árna Bergmann.
Þriðjudagur 22. desember
Kl.9 hófst fundur á Alþingi á atkvæðagreiðslum.
Gert var stuttu hlé fyrir þingflokksfundi áður en atkvæðagreiðsla hófst að nýju, en henni lauk um kl.12:30.
Alþingi kemur næst saman á mánudagsmorgun milli jóla og nýárs.
Seinni partinn og langt fram á nótt vorum við fjölskyldan í matargerð.
Gerðum við m.a. hreindýrapaté, gæsalæraconfí og heitreiktum langvíu, gæs, lúðu og sjóbirting.
Mánudagur 21. desember
Kl.9 hófst fundur á Alþingi á atkvæðagreiðslum.
Í hádegishléi var fundur í forsætisnefnd Alþingis og síðan í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.14:30 var þingflokksfundur.
Kl.15:15 hófst þingfundur aftur á atkvæðagreiðslum á Alþingi.
Kl.17 var sjósund, en í dag, á stysta degi ársins, var sjávarhiti 1,1 gráða, lofthiti mínus 2 gráður og kæling mínus 8 gráður.
Kl.20:15 hófst fundur á Alþingi aftur á atkvæðagreiðslum.
Kl.20:30-22:00 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Sunnudagur 20. desember
Í dag undirbjuggum við jólahaldið.
Um kvöldið skrapp ég í te til mömmu.
Laugardagur 19. desember
Kl.11 hófst fundur á Alþingi á atkvæðagreiðslum.
Kl.14:00-15:30 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.18 hófst árlegt jólaboð Siggu frænku og Golla.
Veitingar voru glæsilegar að venju og allir skemmtu sér vel.
Yngsti gesturinn var Trausti Snær Bjarkason, sonarsonur Þórarinns Hjálmarssonar og Báru Alexandersdóttur.
Að jólaboði loknu skrapp ég á Alþingi þar sem fundur stóð enn yfir.