Föstudagur 18. desember
Í dag lá leiðin heim frá Kaupmannahöfn.
Ekki er enn ljóst hvernig loftslagsráðstefnunni mun ljúka en afar ólíklegt er að lagalega bindandi samkomulag náist um minnkun losun gróðurhúsalofttegunda.
Um kvöldið komu Hildur og Tobbi í heimsókn.
Fimmtudagur 17. desember
Kl.15 er fundur samninganefndar Íslands ásamt þeim Íslendingum sem sækja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna(COP15).
Á fundinum verður skýrt frá því nýjasta í samningaviðræðunum.
Í augnablikinu er mjög óljóst með niðurstöður, en hefðbundið er að samningar skýrast ekki fyrr en í blálokin.
Á morgun verður Obama hér.
Vonandi nær hann að koma hjólunum á meiri ferð, því hér er lítill hraði á þeim um þessar mundir.
Kína þarf líka að liðka fyrir niðurstöðu.
Miðvikudagur 16. desember
Um morguninn fór ég í gegnum Bella Centersvæðið(BC).
Gríðarlega öryggisgæsla er á svæðinu þar sem búist er við mótmælum framan við BC í dag.
Lögreglan er út um allt og búið er að loka lestarstöðinni við BC þ.a. allir verða að ganga að svæðinu frá lestarstöðvunum framan eða aftanvið.
Kl.10 hófst fundur danska þingsins og Alþjóðasamtak þingmanna( Inter-Parliamentary Union, IPU) í danska þinghúsinu í Christiansborg.
Á fundinum voru þingmenn frá öllum heimshornum.
Fundurinn fjallaði um loftslagsmál og stóð allan daginn.
Hér er heimasíða loftslagsráðstefnunnar í BC, COP15.
Nú er ljóst að mótmælin eru orðin það umfangsmikil að þátttakendur á loftslagsráðstefnunni komast hvorki inn né út af fundarstað í BC.
Exstrabladet.dk sendir út beint frá mótmælunum.
Þriðjudagur 15. desember
Í dag hitti ég Bente Dahl, þingmann og formann Norræna menningarsjóðsins, í danska þinghúsinu, Folketinget.
Seinni partinn var ég komin með aðgöngupassa að Bella Center og komst inn á ráðstefnusvæðið.
Um kvöldið var fundur í Climate Parliament.
Mánudagur 14. desember
Kl.8 var áætlað flug til Kaupmannahafnar.
Seinkaði brottför um klukkustund vegna ítarlegrar leitar í hliðinu.
Næstu daga mun ég sækja seinni hluta loftslagsráðstefnunnar ásamt Þórunni Sveinbjarnardóttur og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur.
Gríðarlega langar biðraðir voru fyrir framan Bella Center í dag þar sem fólk beið eftir að fá ráðstefnupassa.
Að lokum var lokað fyrir afhendingu passa þ.a. fjöldi manns, m.a. ég, komst ekki inn og reynir aftur á morgun.
Í dag var útbytt nokkrum skriflegum svörum frá samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller, til mín vegna fjárhagsvanda sveitarfélaga.
Sunnudagur 13. desember
Kl.11-12 vorum við Björgvin G. Sigurðsson, Ólöf Nordal og Ögmundur Jónasson í þættinum Á Sprengisandi á Bylgjunni hjá Sigurjóni M. Egilssyni.
Ræddum við almennt um stöðu stjórnmála í dag í þættinum.
Um kvöldið pakkaði ég í tösku.
Laugardagur 12. desember
Kl.9-13 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis þar sem við fórum m.a. yfir starfsemi s.k. Kragasjúkrahúsa.
Kl.16-20 hittist fjölskyldan til að skera laufabrauð og steikja eins og við gerum alltaf fyrir jólin.
Krakkarnir eru mjög liðtækir í laufabrauðsskurðinum enda í læri hjá vönum ættingjum.
Kl.22-01 var ég á Jólahjólaballi Sniglanna að stýra uppboði til styrktar langveikum börnum og nýrri Grensásdeild.
Vel safnaðist á uppboðinu(361.000 kr.) enda Sniglarnir komnir í gott jólaskap.