Föstudagur 10. september
Kl.12 skrapp ég í Laugardalslaugina en þar var Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona, að skrifa undir styrktarsamning við VÍS.
Dagurinn nýttist að hluta til á skrifstofunni.
Seinnipartinn fór bíllinn í viðgerð.
Fimmtudagur 9. september
Í dag birtist grein mín "Áætlun um ferðamennsku á miðhálendinu" í Fréttablaðinu.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.12 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Kl.13:30 hófst mín vakt á forsetastóli.
Kl.18 lauk fundi á Alþingi.
Kl.20-21:30 var fundur í Sterkara Ísland í Skipholti 50.
Þar var Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands gagnvart ESB, frummælandi og ég fundarstjóri.
Miðvikudagur 8. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Kl.13 er fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Þingi lauk um kl.14:30.
Seinni partinn bjuggum við Hákon til pestó úr basilikum-uppskerunni.
Kl.17:15 var keppt í dýfingum í Nauthólsvíkinni.
Sjóbaðs- og sjósundsfélag Reykjavíkur(SJÓR) stóð fyrir keppninni, en stefnt er að því að halda hana árlega.
Kl.18:30 hófst fundur í stjórn Sundsambandi Íslands(SSÍ).
Í dag voru tímamót á heimsíðunni minni þar sem mynd nr.18.000 var sett inn.
Nú hef ég haldið myndskreyttum dagbókarfærslum úti á heimasíðunni í meira en 8 ár og því hafa þúsundir mynda ratað inn á hana á þessum tíma.
Þriðjudagur 7. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Kl.12 hófst fyrri vakt mín á forsetastóli.
Um miðjan daginn var gerð útför Björns Ingvarssonar frá Hafnarfjarðarkirkju.
Kl.14:30-16:00 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Mánudagur 6. september
Kl.10:15 hófst fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi þar sem þingsályktun mín um að unnin verði áætlun um ferðamennsku á miðhálendinu var samþykkt.
Hér er tillagan og hér er nefndarálitið.
Hér eru atkvæðaskýringarnar (klikkið á "horfa").
Að mínu mati er hér um stórmál að ræða því mjög brýnt er að fara strax að huga að því hvernig við ætlum að taka á móti 1 milljón ferðamanna upp úr árinu 2016 án þess að ganga of nærri umhverfinu.
Kl.12-13 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur.
Kl.15:00-16:30 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Kl.17 er sjósund.
Síðan fór ég í þingið aftur til að ræða um breytingar á stjórnarráðinu.
Hér er hægt að sjá upptöku af henni.
Sunnudagur 5. september
Dagurinn fór í stúss heima við eftir 5 daga fjarveru á hálendi Íslands.
Um kvöldið skrifaði ég grein um þingsályktun mína um áætlun um ferðamennsku á miðhálendi Íslands, en tillagan verður samþykkt á Alþingi á morgun.
Er þetta þriðja tillagan sem ég fæ samþykkta á þessu þingi(1.bann við nektardansi, 2.hafnar verði bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum sem valda m.a. eyrnabólgun, 3.gerð verði áætlun um ferðamennsku á miðhálendinu).
Á morgun verður líka samþykkt þingsályktun frá Höskuldi Þórhallssyni. Fyrr á þinginu var samþykkt tillaga frá Guðmundi Steingrímssyni(öll erum við stjórnarandstæðingar).
Einnig hafa verið samþykktar tillögur frá Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, Skúla Helgasyni og etv.fleirum.
Þetta er jákvæð breyting á störfum þingsins því hér áður fyrr var kannski ein þingmannatillaga samþykkt á hverju þingi.
Traust á Alþingi er lítið og því gaman að segja frá þessari jákvæðu breytingu á starfsháttum þingsins.
.Laugardagur 4. september
Dagurinn nýttist í að uppfæra dagbókina á vefnum og setja inn myndir frá hálendisgöngunni um Laugarveginn milli Landmannalauga og Þórsmerkur.
Um kvöldið kom Gunnar Þór Gunnarsson, leiðsögumaður og skólafélagi minn, í heimsókn.