Föstudagur 20. júlí
Dagurinn nýttist m. a. í góða göngu niður í miðbæ.
Bærinn var fullur af fólki, aðallega erlendum ferðamönnum sem röltu um í sólinni.
Fimmtudagur 19. júlí
Skrapp m. a. á útsölur í Smáralindina með mömmu.
Miðvikudagur 18. júlí
Fór m. a. í Háskólabíó á stórskemmtilega mynd, Intouchables.
Mæli með henni, fyndinn og með fallegan boðskap.
Þriðjudagur 17. júlí
Í dag lá leiðin aftur heim á höfuðborgarsvæðið.
Mánudagur 16. júlí
Dagurinn nýttist í útivist.
Sunnudagur 15. júlí
Dagurinn nýttist í útivist.
Laugardagur 14. júlí
Í dag hljóp Leifur bróðir, Friðleifur Kristinn Friðleifsson, Laugarveginn og lenti í öðru sæti.
Hljóp hann á þriðja besta brautartíma frá upphafi í 16 ára sögu þessa hlaups.
Glæsilegur árangur hjá Leifi.
Um kvöldið lá leiðin út á land.