Föstudagur 17. ágúst
Kl.12 stjórnaði ég fundi Rótarýklúbbs Seltjarnarness.
Seinni partinn tók ég til í garðinum og undirbjó veislu.
Fimmtudagur 16. ágúst
Kl.9 hófst seinni hluti ráðstefnunnar um atvinnumál og stjórmálaþáttöku ungs fólks.
Kl.12:15 fórum við í heimsókn til Aker Arktic Technology, en þar eru gerðar rannsóknir og hönnun ísbrjóta.
Kl.15:30 var flug heim.
Miðvikudagur 15. ágúst
Kl.11:00-12:30 stjórnaði ég fundi flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.14:30 hófst ráðstefna hópsins um atvinnumál og stjórnmálaþáttöku ungs fólks.
Juha Sipila, nýr formaður Miðjuflokksins, hélt innlegg á fundinum.
Um kvöldið sigldum við til Sveaborg þar sem haldið var kvöldverðarhóf miðjumanna í Norðurlandaráði.
Þriðjudagur 14. ágúst
KI.7:55 var flug til Helsinki, en þar er sumarfundur flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Mánudagur 13. ágúst
Kl.17 konu stelpurnar í saumaklúbbnum til mín.
Um kvöldið fórum við í drykk í Hörpunni og mat á Holtið í tilefni afmælis okkar Önnu Hrannar í fyrradag.
Sunnudagur 12. ágúst
Í dag var sól í Nuuk, en síðustu daga hefur aðallega rignt í bænum.
Kl.10:15 var flug til Keflavíkur.
Laugardagur 11. ágúst
Kl.9:30 fórum við í NAPA þar sem við fengum kynningu á verkefnum sem Norræni menningarsjóðurinn hefur styrkt.
Einnig skoðuðum við starfsemi Katuaq, menningarhússins í Nuuk.
Í húsinu er stórt leiksvið og geta 508 áhorfendur setið og fylgst með því sem þar fer fram.
Seinni partinn náði ég að skokka aðeins um Nuuk.
Kl.18:30 var kvöldverðarboð í húsi Hans Egede í boði grænlenska félags- og menningarmálaráðherrans.
Hans Egedes hus er nokkurskonar ráðherrabústaður þeirra Grænlendinga.Boðið var upp á hval, sel, hreindýr, sauðnaut, súrsaða hvönn og fleira.
Josef Mozfeldt, forseti grænlenska þingsins, kom einnig til veislunnar og sagði mér að hann ræktaði íslenskar kartöflur(gullauga) í garðinum við Hans Egedes hus.
Hann tók upp flottar kartöflur í fyrradag og sagði íslensku kartöflurnar afar bragðgóðar.